almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Það er ljóst að í pólitík greinir menn á um leiðir en markmiðin eru væntanlega þau sömu; að búa til tækifæri í íslensku samfélagi fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Í mínum huga er góð staða efnahagsmála forsenda allra annarra þátta í samfélaginu. Hún er forsenda þess að fólk hafi vinnu, hún er forsenda þess að hægt sé að auka kaupmátt og hún er forsenda þess að hér sé hægt að byggja upp öflugt velferðar- og menntakerfi og viðhalda því. Það eru ýmsar leiðir til þess en ég vil búa í samfélagi þar sem einstaklingnum er treyst og honum tryggt frelsi til athafna. Ég vil búa í samfélagi þar sem atvinnulífinu eru skapaðar aðstæður til að eflast og þar sem fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins. Þess vegna eru mínar leiðir í pólitík aðrar en núverandi ríkisstjórnar.
Í ljósi þessa tel ég hvorki vænlegt að setja upp í loft undirstöðuatvinnuveg okkar, sjávarútveginn, eins og nú stefnir í, né að breyta faglegri vinnu um rammaáætlun í pólitískt plagg og draga á þessum tveimur sviðum úr þeirri verðmætasköpun sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda sem þjóð. Við glímum við atvinnuleysi og upplausn á þessum sviðum er ekki til að bæta þar úr.
Allir eru sammála um að áfram eigi að gera út á fiskimiðin og að peninga skuli nýta, en menn greinir þar á um leiðir til ákvarðana. Ég vil frekar að það gerist með ákvörðunum stjórnenda fyrirtækja á frjálsum markaði en að stjórnmálamenn taki ákvarðanir eftir lögmálum stjórnmálanna. Ég tel skynsamlegt að leggja áherslu á að stjórnkerfi fiskveiða skili þjóðarbúinu sem mestum arði og segi þess vegna að stefnumótun stjórnvalda í nýtingu sjávarauðlindarinnar eigi að snúast um að hámarka verðmætasköpun og því þurfi að setja lög og reglur sem hámarka arðsemi þjóðinni allri til heilla.
Lagasetning í sjávarútvegi á ekki að þóknast þröngum hugmyndafræðilegum markmiðum stjórnmálamanna. Hins vegar, góðir landsmenn, er ég fylgjandi veiðileyfagjaldi. Fiskurinn í sjónum er auðlind okkar og fyrir afnot af þeirri auðlind á að greiða. Aðferðafræðina við útfærslu verður hins vegar að vinna í samvinnu löggjafans og hagsmunaaðila með heildarhagsmuni en ekki sérhagsmuni að leiðarljósi.
Góðir landsmenn. Margar fjölskyldur og einstaklingar eru nú í kröppum dansi þess að tekjur standi undir útgjöldum, verðbólga eykst og lánin hækka. En hvað er til ráða?
Í fyrsta lagi er það skylda stjórnmálamanna að ryðja úr vegi pólitískum hindrunum til þess efla tækifæri til verðmætasköpunar. Í öðru lagi verður að breyta um skattstefnu. Það er mín bjargfasta skoðun að lágir skattar hvetji en háir skattar letji og það hefur sýnt sig að skattstefna ríkisstjórnarinnar elur af sér svarta vinnu á sama tíma og við glímum við atvinnuleysi. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Stöðugt skattumhverfi er skilyrði þess að einstaklingar jafnt sem fyrirtæki geti gert sínar framtíðaráætlanir og þeir, einstaklingarnir og þeir sem stjórna fyrirtækjunum, verða að geta treyst því að stjórnmálamennirnir séu ekki sífellt að hringla í því umhverfi.
Góðir landsmenn. Ég er talsmaður þess að lækka skatta og tel að allar slíkar aðgerðir muni frekar auka tekjur ríkissjóðs en hitt. Það er alveg kristaltært í mínum huga að við, fólkið í landinu, erum betur í stakk búin til að ráðstafa okkar eigin fé en misvitrir stjórnmálamenn.
Í þriðja lagi spyrja margir hvað hægt sé að gera í lánamálum. Margar hugmyndir hafa verið ræddar en fáar leiddar til lykta. Í þinginu liggja þörf mál sem eru beintengd lánamálum einstaklinga og fjölskyldna og munu koma mörgum til góða verði þau afgreidd út úr nefndum. Þar má tiltaka nokkur frumvörp og þingsályktunartillögur um afnám stimpilgjalda til allra íbúðakaupa einstaklinga og fjölskyldna og sömuleiðis afnám stimpilgjalda vegna endurfjármögnunar húsnæðislána. Einnig mætti skoða að afnema uppgreiðsluverð á verðtryggðum lánum til almennings. Þessar aðgerðir, góðir landsmenn, væru til bóta fyrir marga og auðvelt að hrinda í framkvæmd en stundum er vilji allt sem þarf.
Góðir landsmenn. Á Íslandi bíða fjölmörg tækifæri til verðmætasköpunar. Höfum kjark og áræði til að nýta þau til hagsældar fyrir land og þjóð.