almennar stjórnmálaumræður.
Frú forseti. Góðir landsmenn. Á Íslandi höfum við öll skilyrði til að reka fyrirmyndarsamfélag, þar sem atvinnuleysi á að heyra til algjörra undantekninga, þar sem þorri heimila nær endum saman um hver mánaðamót, ásamt metnaðarfullu menntakerfi, öflugu heilbrigðis- og velferðarkerfi, enda eru þær aðstæður sem við höfum hér á landi með því besta sem gerist. Nær engin þjóð á jafnmörg tækifæri til þess að búa við slíkar aðstæður. Við eigum gjöful fiskimið, við eigum gríðarlegar orkuauðlindir, íslenska náttúru, ferðaþjónustu, öflugan landbúnað, framsækin nýsköpunarfyrirtæki og síðast en ekki síst öflugan mannauð, öll þessi auðæfi og við erum ekki nema rétt um 320 þúsund einstaklingar sem byggjum þetta land.
Það er því ástæða til að horfa björtum augum til framtíðar vegna þess að tækifærin eru svo sannarlega til staðar. Við eigum að hefja lífskjarasókn hér á landi og nýta tækifærin. Eins og ég sagði áðan, við höfum efni á því að vera bjartsýn þrátt fyrir þá ríkisstjórn sem hefur stýrt landinu og þrátt fyrir röð mistaka, svo sem örar og að mínu viti vanhugsaðar breytingar á skattkerfinu sem hafa dregið verulega úr fjárfestingu hér á landi. Í öðru lagi höfum við horft upp á algjört aðgerðaleysi þegar kemur að virkjanamálum í landinu, að ógleymdri óvissu um rekstrarumhverfi sjávarútvegsins, undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar, sem hefur hamlað fjárfestingu í þeirri mikilvægu atvinnugrein.
Bara þessi þrjú atriði hafa leitt það af sér að fjárfesting í íslensku samfélagi er í sögulegu lágmarki. Hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra getur ekki neitað því þar sem þúsundir starfa hafa í raun glatast. Verðmætasköpun í þjóðfélaginu er engan veginn nægjanleg og því er staðan eins og hún er. Með aukinni fjárfestingu eflist íslenskt atvinnulíf, fleiri fá atvinnu, tekjur heimilanna aukast, sveitarfélögin fá aukið útsvar og ríkissjóður dýrmætar skatttekjur.
Við framsóknarmenn höfum ítrekað lagt fram á Alþingi tillögur í efnahags- og atvinnumálum. Í því ferli höfum við haft víðtækt samráð við aðila úr atvinnulífinu og eftir að hafa farið yfir stöðu og tækifæri með þeim blasa tækifærin eins og ég sagði áðan hreinlega við. Því miður hefur ekkert verið hlustað á þessar hugmyndir, þessar tillögur okkar framsóknarmanna hafa legið í nefnd frá síðasta hausti og verða að öllum líkindum svæfðar af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Þetta eru vinnubrögðin, þetta eru vinnubrögðin sem við þurfum að breyta hér á Alþingi. Við þurfum stjórnvöld sem nálgast málið með þeim hætti að þótt minni hlutinn komi með ábendingar sé rétt að hlusta á þær og jafnvel framkvæma eitthvað af því sem hann leggur til.
Það er jafnframt óásættanlegt fyrir Alþingi Íslendinga að ráðuneytin skuli senda heilan bílfarm, um 60 mál, til þinglegrar meðferðar þegar einungis nokkrir dagar eru eftir af starfsáætlun þingsins.
Góðir landsmenn. Við Íslendingar eigum að reka eitt besta heilbrigðis- og velferðarkerfi sem þekkist. Gríðarlegur niðurskurður hefur átt sér stað í þessum málaflokkum á undanförnum árum og nú er svo komið að sá niðurskurður er kominn langt út fyrir öll velsæmismörk. Vegið hefur verið að grunni heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og að flaggskipinu sjálfu, Landspítalanum. Þess vegna er undarlegt að heyra forustumenn ríkisstjórnarinnar koma hér upp í þessu samhengi og tala um að velferðarkerfinu hafi sérstaklega verið hlíft.
Það er bráðnauðsynlegt að verja meiri fjármunum til velferðarmála en nú er gert. Við framsóknarmenn höfum gengið fram undir kjörorðunum Vinna, vöxtur, velferð. En til þess að auka fjárframlög til velferðarmála þurfum við að auka verðmætasköpun í þjóðfélaginu — eitthvað sem núverandi ríkisstjórn hefur því miður ekki stuðlað að — og við þurfum bráðnauðsynlega að vinna með fólkinu og atvinnulífinu. Við þurfum slík stjórnvöld.
Síðustu þrjú ár hafa hreint ekki einkennst að samvinnu og eindrægni ríkisstjórnar og þjóðar. Nei, því miður er stjórnunarstíll ríkisstjórnarinnar þannig að gengið er fram af hörku og óbilgirni og þar er rétt að spyrja bara Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands um samskipti þeirra samtaka við ríkisstjórnina. Við þurfum stjórnvöld sem hlusta og miðla málum í samfélaginu. Við þurfum ekki ríkisstjórn sem stanslaust elur á óeiningu. Við þurfum ríkisstjórn sem sameinar okkur en ekki sundrar.
Við horfum nú upp á fyrstu hreinu vinstri stjórn í lýðveldissögunni. og árangurinn blasir við. Við verðum að hverfa frá öfgum í hugmyndafræði hvort sem þær koma frá vinstri eða hægri. Hófsöm miðjustefna, byggð á rökhyggju og samvinnu, hefur sjaldan átt eins mikið erindi og nú um stundir, störf og stefna stjórnvalda þar sem verkin tala raunverulega en ekki endalausa blaðamannafundi þar sem núverandi ríkisstjórn lofar þjóðinni tugum þúsunda starfa.
Góðir landsmenn. Við framsóknarmenn höfum lagt í mikla vinnu við að greina þau tækifæri sem við eigum til að hefja lífskjarasókn á ný. Með kosningum og nýrri stefnu í atvinnu- og velferðarmálum getum við gert Ísland að norrænu velferðarríki, eitthvað sem núverandi stjórn hefur því miður hrapallega mistekist. Horfum því bjartsýn fram á veginn, knýjum fram nauðsynlegar breytingar og þá eru okkur allir vegir færir. — Góðar stundir.