fréttir um brot hjá rannsakendum.
Virðulegi forseti. Varðandi skýrsluna hefur hæstv. ráðherra 10 vikur til að skila henni af sér. Þetta var samþykkt af þinginu 17. maí 2011 þannig að þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra kemur með hér ættu væntanlega að koma fram í skýrslunni sem á að koma 10 vikum eftir að skýrslubeiðnin kemur fram.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér framkvæmd eftirlits, við ræðum framkvæmd eftirlits varðandi heilbrigðismálin og annað slíkt og höfum tekið mikinn tíma í slíka umræðu. Hæstv. ráðherra getur ekki látið eins og þetta komi honum ekkert við, því að ef menn ætla að sjá til þess að þeir sem brjóta af sér hljóti þá refsingu sem þeir eiga að gera verður framkvæmd eftirlitsins að vera í lagi. Hæstv. ráðherra getur ekki skotið sér undan ábyrgð, hann er búinn að flytja mál þar sem hann fer fram á ótakmarkaðar heimildir fyrir Seðlabankann. Söfnun upplýsinga hjá Seðlabankanum núna um hvern einasta Íslending er eitthvað sem þekkist hvergi annars staðar og við hljótum að kanna það og hæstv. ráðherra hlýtur (Forseti hringir.) að hafa áhyggjur af því ef eftirlitið er með þeim hætti að það stenst ekki lög og stenst ekki eðlilega stjórnsýslu sem mun gera það að verkum að þeir sem brjóta af sér munu sleppa.