140. löggjafarþing — 109. fundur,  30. maí 2012.

þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræðurnar.

[10:57]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Mín afstaða liggur algerlega skýrt fyrir í þeim efnum. Ég hef tjáð hana meðal annars á fundum með hinum ástsæla stækkunarstjóra bæði í janúarlok úti í Brussel og eins núna á dögunum í Reykjavík. Ég hef lagt á það mikla áherslu að við teljum það ekki hjálplegt að frekari tafir verði á því að þessir stóru kaflar opnist upp. Að sjálfsögðu erum við ekki að biðja um að þeir verði opnaðir upp með skilyrðum eða öðru slíku en maður veltir því auðvitað fyrir sér hvort það sé þá ekki skárra að það gerist á þann hátt sem Evrópusambandið telur sig geta gert frekar en það dragist í einhverri óvissu.

Hversu mikið getur legið fyrir að þessu leyti efnislega í haust, fyrir áramót, er erfitt að fullyrða um en það mun skipta miklu máli í mínum huga varðandi mat á stöðunni hvort þá hafa sjávarútvegur og landbúnaður opnast upp þannig að við sjáum þar á spilin. Ég hef ekki verið talsmaður þess, eins og hv. þingmaður veit, að við hættum allt í einu í miðjum klíðum og án nokkurra nýrra efnislegra ástæðna. Þá værum við að hafa ansi lítið upp úr krafsinu og værum litlu nær en þeim mun meira sem við vitum þeim mun betur getum við áttað okkur á því hvað þarna er á ferðinni.