140. löggjafarþing — 109. fundur,  30. maí 2012.

lengd þingfundar.

[15:04]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég reikna með að hv. þingmenn stjórnarflokkanna muni greiða atkvæði með því að hafa langan þingfund, fram eftir nóttu jafnvel, og ég þakka þeim fyrir að ætla að gera það því að við þurfum tíma til að ræða þetta mál. Ég óska þá eftir því að þeir taki þátt í þeirri umræðu, þeir sem vilja hafa þingfund í kvöld, og deili skoðunum sínum með okkur hinum þannig að ég skora á ykkur sem ætlið að bera ábyrgð á því að vera hér í kvöld að mæta og taka þátt í umræðunni.