140. löggjafarþing — 110. fundur,  31. maí 2012.

tilhögun þingfundar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti tilkynnir að þingfundur í dag stendur eigi lengur en fram að kvöldmat. Gert er ráð fyrir klukkutímalöngu hádegishléi fyrir þingflokksfundi. Engar atkvæðagreiðslur verða í dag. Ekki er gert ráð fyrir að nefndafundir verði fyrr en að loknum þingfundi.