140. löggjafarþing — 110. fundur,  31. maí 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 32/2012 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn.

612. mál
[14:13]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2012 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund embættismenn úr utanríkisráðuneyti og efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Málið var sent til efnahags- og viðskiptanefndar til umsagnar. Ekki bárust athugasemdir frá nefndinni um málið.

Í greindri ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er kveðið á um að fella skuli inn í EES-samninginn ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 30/2011 um jafngildi opinberra eftirlits-, gæðatryggingar-, rannsóknar- og viðurlagakerfa fyrir endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki í tilteknum þriðju löndum og umbreytingartímabil vegna endurskoðunarstarfsemi endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja í Evrópusambandinu sem eru frá tilteknum þriðju löndum.

Markmið ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar er að skapa gagnkvæmt traust milli lögbærra yfirvalda í aðildarríkjunum og tiltekinna þriðju ríkja hvað varðar opinbert eftirlit, gæðaeftirlit og rannsóknir, en jafnframt að tryggja að réttinda hlutaðeigandi aðila sé gætt.

Innleiðing ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingu á lögum um endurskoðendur, nr. 79/2008 fjalla um það efni. Eftir framlagningu þess mun frumvarpið að líkindum koma til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd.

Hvorki er gert ráð fyrir að væntanlegar lagabreytingar muni hafa verulegan kostnað í för með sér né stjórnsýslulegar afleiðingar hér á landi. Þá er ekki fyrirséð að breytingarnar hafi efnahagslegar afleiðingar fyrir einkaaðila hér á landi. Ákvörðunin felur fyrst og fremst í sér gagnkvæma viðurkenningu og umgjörð utan um með hvaða hætti haga skuli gagnkvæmri viðurkenningu á starfsréttindum endurskoðenda, opinberu eftirliti með störfum þeirra, gæðaeftirliti og rannsóknum.

Nefndin leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita auk mín hv. þingmenn Árni Þór Sigurðsson, Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Helgi Hjörvar, Mörður Árnason, Ragnheiður E. Árnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.