140. löggjafarþing — 110. fundur,  31. maí 2012.

matvæli.

387. mál
[17:38]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum. Hv. atvinnuveganefnd fjallaði um málið og fékk á sinn fund Baldur B. Erlingsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og Karen Bragadóttur frá tollstjóra. Umsagnir um málið bárust frá tollstjóra, Samtökum atvinnulífsins og Persónuvernd. Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á matvælalögum. Annars vegar er lagt til að bætt verði við heimild fyrir Matvælastofnun til að hafa aðgang að upplýsingum úr tölvukerfi tollyfirvalda. Hins vegar eru lagðar til breytingar á kærufresti vegna stjórnsýsluákvarðana er varða innflutningseftirlit og kærðar eru til æðri stjórnvalda. Ástæða þess að frumvarpið er lagt fram er sú að Eftirlitsstofnun EFTA komst að þeirri niðurstöðu að íslensk löggjöf uppfyllti ekki kröfur 7. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 136/2004 og 2. mgr. 17. gr. tilskipunar 97/78/EB.

Þrjár umsagnir komu um málið. Í einni þeirri koma fram ábendingar sem snerta 1. gr. frumvarpsins. Nefndin tók hana sérstaklega til skoðunar. Þannig bendir tollstjóri á að farmskrárkerfi tollyfirvalda sé komið til ára sinna og það hafi þar af leiðandi ekki tæknilega burði til að taka við öllum þeim upplýsingum sem eru tilgreindar í 5. gr. reglugerðar um vörslu og tollmeðferð vöru, nr. 1100/2006. Þá bendir tollstjóri á að oft berist farmskrárupplýsingar seint inn í farmskrárkerfið, þ.e. allt þar til vara kemur til landsins. Er vakin athygli á því að til þess að eftirlit sé virkt og skili árangri hafi tollstjóri aðgang að farmskrárkerfum farmflytjenda eða fái upplýsingar sendar frá farmflytjendum með tölvupósti í tilteknum tilvikum. Að lokum bendir tollstjóri á að vegna tæknilegra atriða sé aðeins mögulegt að veita fullan aðgang að farmskrá en ekki takmarkaðan aðgang eins og e.t.v. má lesa úr athugasemdum við frumvarpið.

Á fundi nefndarinnar kom fram að hjá tollstjóra að þar væri unnið að undirbúningi þess að setja upp eina gátt sem taki við öllum nauðsynlegum upplýsingum vegna innflutnings varnings. Fram kom hjá tollstjóra að verkefnið byggðist á 20/20 sóknaráætlun og aðgerðaáætlun um einfaldara Ísland. Þannig væri stefnt að því að þegar vara kæmi á landamæri Íslands þyrfti einungis að senda nauðsynleg gögn á einn stað. Þá var upplýst að verkefnið væri stórt að sniðum þó að það snerti fyrst og fremst upplýsingakerfi tollyfirvalda. Það var bent á að vegna undirbúnings þessa verkefnis þyrfti að greina þörf annarra stofnana til aðgangs að kerfinu. Að mati nefndarinnar eru framangreindar hugmyndir tollstjóra um einföldun upplýsingaskila vegna innflutnings varnings mjög virðingarverðar. Nefndin fagnar þessari framtíðarsýn og hvetur til þess að undirbúningi verði hraðað þannig að framangreindar hugmyndir komist til framkvæmda eins fljótt og verða má.

Til þess að bregðast við þeim ábendingum tollstjóra sem snerta frumvarpið leggur nefndin til að gerðar verði breytingar á 1. gr. frumvarpsins. Í fyrsta lagi verði aðgangsheimild 1. málsliðar greinarinnar víkkuð þannig að hún taki til allra farmskrárupplýsinga úr upplýsingakerfum tollyfirvalda í stað þess að hún feli aðeins í sér heimild til að nálgast farmupplýsingar vegna eftirlits með vörum sem 27. gr. a og 27. gr. b matvælalaga ná til. Er þessi breyting lögð til vegna þeirra tæknilegu annmarka sem eru á upplýsingakerfi tollyfirvalda og gera það að verkum að ófært er að takmarka aðgang við ákveðnar vörur. Er það mat nefndarinnar að tillagan samræmist kröfum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 136/2004. Í öðru lagi er lagt til að nýrri aðgangsheimild verði bætt við greinina, þ.e. heimild Matvælastofnunar til þess að afla upplýsinga úr farmskrám farmflytjenda með sama hætti og tollyfirvöld gera samkvæmt heimildum í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Í þriðja lagi er lagt til að áréttað verði að sama þagnarskylda hvíli á starfsmönnum Matvælastofnunar og starfsmönnum tollyfirvalda vegna meðhöndlunar upplýsinga sem afla verður á grundvelli greinarinnar.

Í ljósi framangreindrar umfjöllunar leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem fylgir með í nefndaráliti atvinnuveganefndar.

Hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita auk mín sem er framsögumaður, hv. þingmenn Kristján L. Möller, formaður nefndarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Björn Valur Gíslason, Sigurður Ingi Jóhannsson og Þór Saari.

Að lokinni 2. umr. legg ég til að málið gangi síðan að nýju til atvinnuveganefndar og síðar 3. umr.