140. löggjafarþing — 111. fundur,  1. júní 2012.

umræður um veiðigjöld og frumvarp um stjórn fiskveiða.

[11:28]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kvaddi mér hljóðs um fundarstjórn forseta vegna ummæla hv. þm. Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, um að ég hafi ekki tekið sérstaka umræðu. Hv. þingmaður hefur þegar sagt að það hafi verið mistök hjá sér og beðið mig afsökunar á því vegna þess að engin umræða bíður, þannig að það sé bara leiðrétt og það er alveg að meinalausu hvað það varðar.

Ég ætla að nota tækifærið fyrst ég valdi að fara hér upp og vekja athygli á því sem hefur komið mér mjög á óvart frá því að ég kom inn á þing. Menn hafa mikið kallað eftir sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu. Ég hef aldrei skilið það að þegar við sem ráðherrar — sem ég varð nú ekki fyrr en fyrir skömmu — skilum máli inn í þingið skuli endalaust verið að kalla eftir leiðsögn ráðherranna í sambandi við það. Menn byrja alltaf á því að kalla ráðherrana inn. Hér eru mál að koma til 2. umr., þingið hefur tekið við því, nefndin er að skila af sér, nefndin er að fara í umræðuna, en þá er eins og sumir hv. þingmenn þurfi að kalla eftir einhverri móðurlegri (Forseti hringir.) umhyggju til að leiðbeina þeim áfram í þinginu. Það er ekki sjálfstætt þing gagnvart framkvæmdarvaldinu, heldur á þingið að sjálfsögðu að vinna sína vinnu og gera (Forseti hringir.) það án þess að við sitjum og öndum ofan í hálsmálið á þingmönnum. [Kliður í þingsal.]

(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um hljóð í þingsalnum.)