sjúkratryggingar og lyfjalög.
Frú forseti. Í þeirri nefnd sem ég stýrði á sínum tíma var einmitt rætt um hvort hægt væri að taka lyfin ein sér og var fallið frá því vegna þess að fjöldi fólks sem ekki borgar lyf í dag borgar heilmikið fyrir myndatökur, heimsóknir, læknamóttökur o.s.frv. Það fólk mun nú borga bæði fyrir þessar heimsóknir og ferðalög og allt slíkt til viðbótar við lyfin þannig að verið er að búa til nýtt ósamræmi, nýtt misrétti og þess vegna get ég ekki stutt þessa annars ágætu tillögu. Ég skora á hv. nefnd, því að ég lít á hana sem löggjafa, að semja nú þegar eins fljótt og hægt er frumvarp sem tekur á öllum heilbrigðiskostnaði í heilbrigðiskerfinu eins og hugmyndir voru uppi um og eiginlega allir voru sammála um að væri bráðnauðsynlegt. Ég mun sitja hjá núna.