140. löggjafarþing — 111. fundur,  1. júní 2012.

siglingalög.

348. mál
[11:50]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Eins og ég gerði grein fyrir í stuttri ræðu við 3. umr. í gær tel ég að enn séu ákveðin ákvæði óskýr sem gera það að verkum að erfitt verður að framkvæma þau. Þess vegna mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Ég tek fram að ekki er grundvallarágreiningur um efni frumvarpsins sem slíks en ábendingar hafa borist um óskýrleika sem ég tel að ekki hafi verið að fullu komið til móts við.