140. löggjafarþing — 111. fundur,  1. júní 2012.

myndlistarlög.

467. mál
[12:50]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum sem hér töluðu, fulltrúar hv. allsherjar- og menntamálanefndar, og þakka hv. þm. Þuríði Backman fyrir að leiða starfið við þessa lagagerð með einkar farsælum og málefnalegum hætti og til mjög góðar niðurstöðu. Ég tek undir það sem hv. þingmaður og framsögumaður málsins sagði áðan, ég held að þetta frumvarp, þegar það verður samþykkt sem lög frá Alþingi, sé til mikilla bóta og framfara fyrir myndlistina, og að verið sé að jafnsetja hana og þá listamenn sem innan greinarinnar starfa við margar aðrar greinar lista og menningar sem um eru rammalög og ýmis önnur ákvæði. Það sem þarna næst fram er til framfara og umbóta fyrir greinina og þar með listir og menningu almennt í landinu og fagna ég því mjög og þakka hv. framsögumanni og nefndinni allri fyrir mjög góða og málefnalega vinnu í þessu mikilvæga máli nú í vetur.