veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Við höfum nú heyrt að sumum finnst hafa orðið mikil lækkun frá því að fyrstu tillögur meiri hlutans um veiðigjald komu fram þar til núna með breytingartillögum meiri hlutans þar sem sagt er að lækka eigi veiðigjaldið um heila 6 milljarða, það sé þvílíkur afsláttur sem eigi að gefa. Mér finnst næstum því eins og fyrri talan sé fundin með því að setja puttann upp í vindinn, menn hefðu alveg eins getað sagt: Tökum 80 milljarða og gefum 20 milljarða í afslátt, það er svakalega fínt. Málflutningurinn er frekar ótrúverðugur.
Hv. þingmaður vitnaði í ræðu sinni í hv. þm. Helga Hjörvar. Ég spyr hv. þingmann: Er það ekki rétt munað hjá mér að einn þeirra sérfræðinga sem unnu fyrir ríkisstjórnina eða stjórnarflokkana að (Forseti hringir.) þessu máli lýsti því yfir að forsenda þess að veiðigjaldið gæti gengið eftir væri að það byggði á óbreyttu kerfi?