140. löggjafarþing — 111. fundur,  1. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[22:16]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel nú ekki svo vera. Ég geri grundvallarmun á því þegar kemur að fjáröflun í sameiginlega sjóði landsmanna, sem ég tel að eigi að vera einsleit, að þar eigi ekki fyrst og fremst að horfa til þess hver sé búseta manna heldur að við leggjum á skatta með almennum reglum jafnt á atvinnulíf sem einstaklinga og söfnum því í einn sameiginlegan sjóð að því marki sem það er ríkissjóður en ekki sveitarsjóðir.

Þegar kemur hins vegar að ráðstöfun teknanna deili ég að mörgu leyti þeim sjónarmiðum að það er umhugsunarefni hversu lítið gengur til baka út á ákveðin svæði landsins, en það sprettur einfaldlega af því að þar er ekki umfangsmeiri opinber þjónusta og opinber rekstur en raun ber vitni. Þetta er klassísk umræða sennilega allra höfuðborgarsvæða og þéttbýlissvæða í heiminum, að minnsta kosti þekki ég hana mjög vel frá hinum Norðurlöndunum þar sem fólki í norðanverðri Skandinavíu finnst mikið af skatttekjum þess renna suður á bóginn til Stokkhólms, Óslóar eða Helsinki og lítið koma til baka. (Forseti hringir.) Það er hin hliðin á málinu. Það er hún sem ég tel við eigum að horfa á en ekki ímynda okkur að við leiðréttum (Forseti hringir.) þessa skekkju í gegnum tekjuöflunarhliðina.