kostnaður við almenna niðurfærslu lána.
Frú forseti. Enn virðist hæstv. forsætisráðherra ekki hafa vanist því að svara spurningum í stað þess að spyrja þeirra. Nú er hæstv. forsætisráðherra í því hlutverki að svara spurningum. Það sem ég nefndi áðan var að ef menn taka mark á niðurstöðum þessarar skýrslu þá staðfestir hún hvers lags mistök voru gerð við stofnun nýju bankanna. Þegar við töluðum fyrir niðurfærslu lána og lögðum til leið til þess var það við stofnun nýju bankanna þar sem öll tækifæri voru til staðar án þess að nokkur kostnaður lenti á ríkinu. Hins vegar virðist forsætisráðherra ekki vilja svara þeirri spurningu.
Þegar kemur að Icesave, hvert var þá svarið? Þá er svar hæstv. forsætisráðherra að enn geti málið hugsanlega farið illa, lesist: Farið vel fyrir ríkisstjórnina. Það hlýtur að vera áhyggjuefni að heyra hæstv. forsætisráðherra enn tala þannig að ríkisstjórnin sé nánast að vonast til þess að Íslendingar verði dæmdir til að greiða sem hæstar bætur í Icesave-málinu til að sýna fram á að mistök ríkisstjórnarinnar hafa ekki verið jafnstór og nú blasir við.
Með öðrum orðum, hæstv. forsætisráðherra, ef menn taka mark á niðurstöðum þessarar skýrslu sýna þær hvers lags gríðarlegar gjafir (Forseti hringir.) ríkisstjórnin færði kröfuhöfum bankanna, slíkar að ríkið stæði ekki undir þeim nú, og í öðru lagi að ríkið hefði sett Ísland á hausinn með Icesave-kröfunum.