frumvörp um sjávarútvegsmál.
Virðulegi forseti. Sú spurning er áleitin hvort hæstv. ríkisstjórn vilji Íslandi hið versta. Ég ætla henni það ekki í sjálfu sér en oft og tíðum hlýtur að gæta mikils misskilnings og þekkingarleysis í verkum hennar miðað við hvaða mál hún leggur fram á þingi og ætlar sér að keyra í gegn, mál sem ganga augljóslega mjög gegn hagsmunum íslenska ríkisins. Það á við um þau sjávarútvegsfrumvörp, virðulegi forseti, sem við fjöllum núna um í þinginu. Þau eru auðvitað ein alvarlegasta atlagan sem gerð hefur verið að íslensku samfélagi á undanförnum árum. Það kristallast í öllum þeim fjölmörgu umsögnum sem við höfum fengið frá hlutlausum aðilum og hagsmunaaðilum og þeirri breiðu andstöðu við þá leið sem þar á að fara og afleiðingar hennar.
Hæstv. forsætisráðherra hefur með uppnefnum og dónaskap vegið að fólki í atvinnulífinu. Á flokksráðsþingi Samfylkingarinnar í febrúar voru dregin fram kunnugleg slagorð, eins og íhaldsöfl, forréttindastéttir, valdaklíka íhaldsafla og sægreifa, hagsmunagæsluöfl, gíslataka, grímulaus valdaklíka og óskammfeilnar þvingunaraðgerðir. Þetta voru orð hæstv. forsætisráðherra til fólks sem starfar í sjávarútvegi.
Í ljósi þeirrar breiðu andstöðu við frumvörpin hjá öllum aðilum langar mig að spyrja hæstv. ráðherra alveg sérstaklega: Við hverja eiga þessi orð hennar? Á þetta við um Landssamband smábátaeigenda? Á þetta við um sjómannasamtökin? Á þetta við um ASÍ? Á þetta við um fjármálastofnanir, og kannski sérstaklega Landsbankann? Á þetta við um þá sérfræðinga í auðlindahagfræði og uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa lagt mat sitt fyrir atvinnuveganefnd? (Forseti hringir.)