140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

framhald þingstarfa.

[11:08]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil koma hingað upp og inna hæstv. forseta eftir því hvað hún hefur í hyggju varðandi þingstörfin næstu daga. Í dag er 4. júní og engin starfsáætlun í gangi. Henni lauk, eins og þingmenn vita, 31. maí. Enginn þingflokksformannafundur hefur verið boðaður eða haldinn í dag, engir samningafundir formlegir eða óformlegir eftir því sem mér er kunnugt um.

Hæstv. forsætisráðherra hefur látið í það skína að hún vilji halda þinginu í sumar. Hæstv. forseti hefur látið það koma skýrt fram að það sé ekki það sem hún hafi í hyggju. Nú vil ég spyrja hæstv. forseta hvað sé á döfinni.

Við vitum að stór mál ríkisstjórnarinnar eru enn í nefnd. Ætlar hæstv. forseti að leyfa ríkisstjórninni, framkvæmdarvaldinu, að halda þinginu í gíslingu þessara óvönduðu vinnubragða?