140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[12:30]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins út af orðaskiptum hv. þingmanna um það sem varð ekki talið til tekna frá sveitarfélaginu Bolungarvík vegna þeirra sem stýra línuívilnun held ég að sveitarstjórnin og umsagnaraðilar þar hafi gefið umsagnir um það mál sem er verið að fjalla um núna. Það er ekkert í þessu máli hér sem breytir því nema síður sé í sambandi við línuívilnunina því að það er lögð til skerðing á henni. Það er mjög sérkennilegt að gera kröfu um að menn veiti umsagnir um núverandi stjórn fiskveiða vegna þeirra breytinga sem eru að eiga sér stað núna.

Hv. þingmaður kom í ræðu sinni töluvert inn á álit sveitarfélaganna og nefndi af því tilefni nokkur þeirra. Þar er af nógu að taka og erfitt að vitna í þau öll, það gefur augaleið. En mig langar að spyrja hv. þingmann út í eina umsögn sem liggur fyrir út af þessum málum sem við erum að fjalla um, umsögnina frá Vesturbyggð. Þar horfir til betri vegar en þar hefur verið samdráttur á undanförnum árum eða áratugum og fólksfækkun eins og víðast hvar á landsbyggðinni. Í umsögn Vesturbyggðar kemur fram, með leyfi forseta:

„Með þessu má álykta að tæpar 300 milljónir flytjist frá Vesturbyggð til Reykjavíkur. Reynslan hefur sýnt að heldur ólíklegt er að þeir fjármunir skili sér til baka. Þá meta stjórnendur stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna í Vesturbyggð það svo að rekstur þeirra þoli ekki margföldun veiðigjalds og að þau verði gjaldþrota á mjög stuttum tíma …“

Við hv. þingmaður þekkjum báðir mjög vel hversu skertar samkeppnisaðstæður sjávarútvegsfyrirtækja á sunnanverðum Vestfjörðum eru, aðallega vegna samgöngumála. Því spyr ég hv. þingmann hvort hann hafi ekki verulegar áhyggjur af því sem forustumaður sveitarfélags Vesturbyggðar benti á, þeirri þróun sem gæti átt sér stað ef þessi mál ná fram að ganga. Hver er skoðun hans á því, getur hann tekið undir með forsvarsmanninum að sveitarfélagið þoli ekki þessa skattlagningu í raun?