140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[12:59]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Einar K. Guðfinnsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann um að gera upp hug sinn í einu máli: Er vandamálið það að arður í sjávarútveginum sé svo ofsalegur að það þurfi nauðsynlega að grípa til sérstakra úrræða, sérstakrar skattlagningar til að ná í þennan arð eða er staðan sú sem hv. þingmaður sagði núna að væri uppi að sjávarútvegurinn rambaði meira og minna á barmi gjaldþrots? Annað getur verið rétt en hitt er þá auðvitað augljóslega rangt. Ég held reyndar að hvorugt sé rétt.

Sjávarútvegurinn hefur verið að byggja upp aukna arðsemi. Sú arðsemi og sú hagræðing sem orðið hefur hefur hins vegar ekki orðið án kostnaðar og mörg fyrirtæki hafa hagrætt á síðustu árum meðal annars vegna þess að við erum með nýtt fiskveiðistjórnarkerfi hjá smábátunum sem valdið hefur skuldsetningu sem fyrirtækin eru að reyna að vinna á. Það sem liggur fyrir í úttektum sem við höfum fengið er að sjávarútvegurinn mundi almennt talað, miðað við óbreytt kerfi, ráða við skuldbindingar sínar, enda hefur það komið fram að afskriftir í sjávarútvegi hafa verið með allra minnsta móti og sjávarútvegurinn stendur betur í skilum við lánastofnanir en aðrar atvinnugreinar í landinu. Það er ótvírætt og það liggur fyrir.