140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[17:01]
Horfa

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú svo að nú hvessir við túnfótinn og hvín í fjörunni. Ríkisstjórn Íslands getur ekki endalaust lokað augunum. Hún getur það ekki þegar byrjar núna fundaröð um allt land, eins og maður sér bara í hendi sér, að mótmæla þessari stöðu. Sjómenn hafa ekkert kvartað yfir því að flotanum er siglt í land í heila viku. Lífsbjörginni sjálfri er siglt í land. Verður það næsta skref að íslenski flotinn sigli inn í Reykjavíkurhöfn, og um leið og hann fyllir höfnina er hún lokuð? Verður næsta skref að þúsund sjómenn standi á Austurvelli í stökkum? Ætli þingmenn stjórnarandstöðunnar fari þá og slái pilsum. Ég reikna ekki með því.

Þetta er svo alvarlegt að bregðast verður við. Þess vegna er eina ráðið að rifa seglin og semja þetta mál út. Það eru svo mörg atriði sem menn eru sammála um. En að fara að setja veiðigjaldið á uppboð hér í þinginu, eins og gert var fyrr í dag þegar tveir stjórnarþingmenn fóru að spyrja: Hvað finnst þér hóflegt gjald? Maður spyr ekki svona. Maður spyr: Hvaða möguleika hefur greinin til að greiða rentu af því sem inn kemur? Það eru einu rökin sem hægt er að byggja á. Þar verður að vera borð fyrir báru til að menn geti haldið rekstrinum með þeirri áhættu og því svigrúmi sem þarf.

Það er því miður svo, virðulegi forseti, að mikil hætta er á því að ofurkapp verði sett á það að neyða stjórnarþingmenn til að samþykkja eitthvað sem þeir eru gegn. Ég hef samt trú á því að þeir muni (Forseti hringir.) standast þá áraun. En það er ekki í hendi enn þá.