veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Annaðhvort er útgerðin á hausnum eða henni gengur vel. Hv. þingmaður verður að skýra fyrir okkur hvort er.
Ég vil síðan segja við hv. þingmann: Byggðarlög um allt land hafa átt í vök að verjast, byggðarlög þar sem jafnvel er engin útgerð, byggðarlög sem eru lengst inni í landi. Það er ekki hægt að láta eins og kvótinn eða fiskveiðistjórnarkerfið valdi öllu sem er að úti á landi. Nær væri að tala um hve illa okkur hefur gengið að bæta samgöngur, jafna raforkuverð og ýmislegt þess háttar. Auðvitað skipta atvinnumálin líka máli en mig langar að spyrja hv. þingmann beint út, fyrst þingmaðurinn fer í málið með þessum hætti: Hefur þingmaðurinn persónulega reynslu af því að selja aflaheimildir?