veiðigjöld.
Frú forseti. Nú er reyndar gert er ráð fyrir því að 40% af því veiðigjaldi sem kemur fyrir leigu aflaheimilda úr leigupotti renni til sveitarfélaganna. En það er vissulega rétt að gert er ráð fyrir því tímabundið að af almenna og sértæka veiðigjaldinu fyrir nýtingarleyfi renni það til ríkisins vegna stöðu ríkissjóðs. En það er líka yfirlýst stefna beggja stjórnarflokka að það beri að koma á auðlindasjóði í framtíðinni sem verji þessum tekjum til rannsókna, þróunarstarfs o.s.frv.
Mig langar aðeins að segja, auðvitað er ég alveg sammála því að 70% af umsvifum ríkisins eru í Reykjavík þó að þaðan komi aðeins 40% skatttekna, en það er sjálfstætt úrvinnslumál og vandamál. Ég er hins vegar alls ekki sammála því að veiðigjaldinu verði velt á sjómenn með tilheyrandi tekjuskerðingu (Forseti hringir.) eins og þingmaðurinn lét liggja að, vegna þess að það er beinlínis gert ráð fyrir að launakostnaður (Forseti hringir.) útgerðarinnar dragist frá veiðigjaldsstofninum.