140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[21:29]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir einlæga og ítarlega ræðu þar sem hún rakti í góðu og löngu máli hvernig ástandið er á landsbyggðinni eftir áratugastjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Það er nákvæmlega það sem hún var að gera, við búum við það að það hefur orðið gríðarlegur fólksflótti, m.a. af Vestfjörðum, um 20% á þeim tíma sem við höfum verið að ræða.

Ég er efnislega sammála um öll þau áhyggjuefni sem hv. þingmaður nefndi og stuðningsmaður þess að bæta búsetu og auka jafnræði. Hv. þingmaður kom inn á það að hér ætti að greiða fyrir afnot og það ætti að vera hóflegt. Mig langar aðeins að heyra skoðun þingmannsins á því hvað er hóflegt. Eins sagði hún að það ætti að skipta gjaldinu þannig að það færi til nýsköpunar og að það ætti að fara til landsvæða en taldi líka upp að það ætti að fara til ríkisins. Hvernig eiga þau hlutföll að vera og hvernig sér hún fyrir sér að við eigum að ráða við þau verkefni sem voru í fjárfestingaráætluninni öðruvísi (Forseti hringir.) en að fá til þess tekjur einhvers staðar ef við ætlum að hraða uppbyggingunni á landsbyggðinni?