veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Mér finnst að mörgu leyti áhugaverð tillagan hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni sem kom fram í frumvarpi hans um skiptinguna á veiðigjaldinu. Það er ein hugmynd sem væri hægt að ræða.
Á þeim í greininni sem ég hef rætt við finn ég ekki fyrir því að menn telji ekki að það sé rétt að þeir borgi hærra veiðigjald. En þegar þeir fá sérfræðinga til að reikna fyrir sig áhrif af þeim tölum sem komu fram í upprunalegu drögunum og jafnvel núna við breytingarnar horfa þeir upp á það að fyrirtækið verður nánast ógjaldfært og þá er náttúrlega ekki einkennilegt að ekki bara starfsmenn fyrirtækjanna bregðist við heldur byggðirnar í heild sinni.
Ég get ekki sagt til um það nákvæmlega hver upphæðin ætti að vera, ég á ekki sæti í atvinnuveganefnd, en þegar maður heyrir að (Forseti hringir.) eitt byggðarlag, Vestmannaeyjar, eigi að fara að borga 4 milljarða á ári í veiðigjöld þrátt fyrir lækkunina finnst manni það töluvert.