veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Illuga Gunnarssyni fyrir ræðuna. Ég stoppaði sérstaklega við þann hluta ræðunnar sem ég tel varða það hvernig hv. þingmaður nálgast væntanlega stjórnmálin, grunnhugmyndafræðina og áherslurnar sem hann lagði á mikilvægi einkaeignarréttarins. Hann nefndi til samanburðar íslenska sjávarútveginn og mexíkóska olíuiðnaðinn. Ég velti fyrir mér hvort það sé einhver sérstök ástæða fyrir því að hv. þingmaður hafi ákveðið að ræða frekar um Mexíkó en Noreg. Hið opinbera á líka olíufélagið í Noregi. Það á líka raforkufyrirtækið Statkraft og Norsk Hydro. Það á stærsta norska bankann, DnB NOR, og enn fremur símafyrirtækið, Telenor, og stjórnar 31,6% af skráðum félögum.
Ég held að við getum flest verið sammála um að lífskjör mælast hvergi betri en í Noregi. Hvernig ganga þessi rök þá eiginlega upp hjá hv. þingmanni að það sé alltaf best að eignarhaldið sé hjá einkaaðilum?
Ég var mjög fegin að heyra líka að hv. þingmaður ætlaði að tala sérstaklega um hlut landsbyggðarinnar. Ég hef fyrst og fremst viljað nálgast þetta mál út frá því að þarna sé verið að auka ójöfnuðinn í samfélaginu, ójafnræði þegnanna, með því að skattleggja landsbyggðina langt umfram það sem fólkið á höfuðborgarsvæðinu er skattlagt. (Forseti hringir.) Ég mundi gjarnan vilja fá svör frá þingmanninum um þetta.