140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[22:30]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að skýra aðeins betur hvað hann átti við. Ef við horfum til Íslands og nágrannalandanna, landa í Vestur- og Norður-Evrópu, hefur mér frekar fundist fjölbreytileikinn í efnahagslífinu einkenna þau. Ríkið er virkt, einkaaðilarnir líka og svo ætla ég að nefna að við erum líka oft með mjög öfluga samvinnuhreyfingu. Það virðist skipta máli.

Þegar maður ber saman upplýsingar um Mexíkó og Noreg, sem væntanlega er eitt af því sem skiptir líka máli fyrir Bandaríkin þó að menn hafi talað um mikinn ójöfnuð þar, virðist jöfnuður vera eitt af lykilatriðunum til að tryggja samfélagslega sátt. Þá vil ég koma að þessu sem ég vona svo sannarlega að þingmaðurinn fari mjög vel í gegnum þegar hann kemur aftur í ræðu, en líka í andsvari við mig, hvort hann hafi ekki áhyggjur af því sem mun gerast með þessari miklu skattlagningu á landsbyggðina. Með henni eykst óréttlætið og ójöfnuðurinn í samfélaginu sem getur einmitt gert það að verkum að það trosnar upp úr samfélagssáttmálanum. Ég held að flestir Íslendingar séu sammála um að við viljum borga í sameiginlega sjóði til að byggja upp vegakerfið, heilbrigðiskerfið, félagslega kerfið og menntakerfið. Ákveðið hlutfall íbúa upplifir að það borgi og borgi í þessa sameiginlegu sjóði en fái mjög takmarkað af því til baka.