140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[23:41]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessi ágætu skoðanaskipti. Það má þó segja um hann og hans flokk að við getum átt efnislegar umræður um sjávarútvegsmálin. Ég hélt hér ræðu þar sem ég kom inn á margvíslega þætti sjávarútvegskerfisins og ekki einn nefndarmaður í atvinnuveganefnd hafði fyrir því að koma í svo sem eins og eitt andsvar til þess að ræða um hvernig við viljum skipa sjávarútvegsmálum til framtíðar. Það er óvirðing gagnvart málaflokknum. Þess vegna vil ég hvetja hv. stjórnarliða til þess að koma til þessarar umræðu vegna þess að við erum trúlega að ræða um eitt allra stærsta atvinnu- og byggðamál á seinni tímum, þ.e. ef mönnum er alvara að gjörbylta þessu kerfi, sem ég vona að verði ekki reyndin. Vonandi munum við í sameiningu og í sátt ná að sníða agnúana af þessu kerfi sem annars hefur verið mjög hagkvæmt í gegnum tíðina og (Forseti hringir.) skilað ríkissjóði miklum tekjum.