140. löggjafarþing — 113. fundur,  5. júní 2012.

störf þingsins.

[10:52]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Þær ólöglegu aðgerðir sem LÍÚ stendur núna fyrir með því að kyrrsetja flotann og taka þar með landverkafólkið sitt og sjómennina í gíslingu, beita fyrir sig mannlegum lifandi skildi í stríði þeirra við stjórnvöld, lýsir auðvitað best því hugarfari og þeirri óbilgirni og hörku sem einkennt hefur framgöngu þeirra ágætu samtaka í stríði sínu við stjórnvöld undanfarin missiri. Þessar aðgerðir koma harðast niður á þeirra eigin fólki, ekki síst landverkafólkinu. Það er ódrengilegur leikur, sem leikinn hefur verið í þessari umræðu undanfarin missiri, að ýta undir ótta fólks, skapa ótta og ugg og ýta undir óöryggi fólks um afkomu sína og barna sinna eins og LÍÚ hefur stundað í stríði sínu við allt og alla síðustu missiri.

Það hlýtur að vera íhugunarefni fyrir stjórnvöld þegar þessi valdamiklu samtök beita afli sínu á þennan veg og neita að nýta auðlindina fram undan landsteinum. Það hlýtur að koma til álita hjá stjórnvöldum að hugleiða það hvernig þessum verðmætum verði helst bjargað og hvernig best sé að koma málum þannig fyrir að landverkafólk njóti atvinnu og haldi tekjum sínum. Auðvitað hlýtur það þá að koma til greina að úthluta þessum verðmætum með öðrum hætti og þetta hlýtur að herða stjórnvöld enn frekar í þeirri fyrirætlan sinni að innkalla allar aflaheimildir og úthluta þeim að nýju á nýjum forsendum.

Ég vil líka minna á það að í sameiginlegri bókun nokkurra hagsmunasamtaka í sáttanefndinni fyrir tveimur árum, meðal annars Sjómannasambandsins, var lögð á það megináhersla að aflaheimildum yrði úthlutað í formi 15 ára nýtingarsamninga, 15 ára ekki 20.

(Forseti (ÁRJ): Forseti minnir á að ræðutíminn er tvær mínútur og biður hv. þingmenn um að virða hann.)