störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni fyrir hans ræðu og taka undir orð hans varðandi forvirkar rannsóknarheimildir. Ég sé að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hefur líka afgreitt mál er varða grundvallarskilgreiningar á löggæslu á Íslandi og gerð löggæsluáætlunar fyrir Ísland. Ég vil einnig óska eftir því að við reynum að klára það mál jafnhliða á þessum lokadögum þingsins.
Það sem mig langar þó að nefna núna er það sem menn hafa verið að ræða hér, þ.e. aðgerðir útvegsmanna. Ég skil svo sem málflutning Samfylkingarinnar, ég verð að segja það, hann er mjög kunnuglegur. Þetta er það sem Samfylkingin er búin að gera út á alveg frá stofnun þess ágæta stjórnmálaflokks, að hjóla í útgerðina, hjóla í útveginn, eins og þessi grein sé rót alls hins illa. Það er hins vegar svo merkilegt að flestir úti í heimi virðast líta þessa atvinnugrein og fiskveiðistjórnarkerfið öðrum augum en Samfylkingin. Ég veit ekki betur en fyrirheitna landið, Evrópusambandið, líti til Íslands og horfi til þess að þetta sé það kerfi sem líklega væri best að taka upp.
Ég vil líka segja það við hv. þingmenn Samfylkingarinnar, sem vilja klára viðræður og taka hraðlestina inn í Evrópusambandið, að þegar þangað er komið þá held ég að þeir hinir sömu þingmenn verði að fara að venja sig við aðgerðir af þessu tagi. Ég veit ekki betur en sjómenn í Evrópusambandinu hafi stíflað hafnir til að leggja áherslu á sín mál. Bændur hafa hellt mjólk og kúamykju á götur til að leggja áherslu á (Gripið fram í.) — hv. þingmaður er að gjamma fram í, virðulegi forseti. Ég vil geta þess vinsamlega að þeir sem eru innan dyra í LÍÚ eru að reka fyrirtæki líkt og bændur, (Gripið fram í.) þeir eru að reka fyrirtæki. Ég er ósammála hv. þingmanni sem kallar fram í ótt og títt að það sé ólöglegt sem verið er að gera þarna. Þetta er bráðnauðsynlegt, held ég. Þetta er nákvæmlega það sem bíður hv. þingmanns innan Evrópusambandsins, þ.e. aðgerðir af þessu tagi, bæði frá verkalýðnum og frá atvinnurekendum. [Kliður í þingsal.]
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um einn fund í salnum.)