störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að vekja athygli þingheims á tölvupóstum sem okkur þingmönnum hafa borist að undanförnu þar sem hv. þingmenn eru hvattir til að styðja Vaðlaheiðargangaframkvæmdina. Þessir póstar hafa komið frá sveitarstjórnum ekki bara í Eyjafirði heldur líka í Þingeyjarsýslum, Hörgársveit, Skútustaðahreppi, Eyjafjarðarsveit og frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar. Það er góð og mikil samstaða um þessa framkvæmd á norðausturhorni landsins enda áttar fólkið sig á mikilvægi hennar.
Hv. þm. Þór Saari svaraði einu þessara bréfa og lét að því liggja að það væri hægt að taka það lánsfé sem nota á í framkvæmdina og setja í önnur verkefni. Hv. þingmaður reynir þar að etja saman einstaka verkefnum á landsbyggðinni. Það er ekki rétt að gera það. Það er ljótur leikur. Það er ekki réttlætanlegt að taka lán og auka vaxtakostnað ríkissjóðs í því árferði sem nú er. Það er hins vegar réttlætanlegt í undantekningartilvikum þegar fólk er reiðubúið að standa sjálft straum af framkvæmdinni og borga notendagjöld eins og reyndin er varðandi Vaðlaheiðargöng. Ef fólk skilur það ekki segi ég: Það er ekki réttlætanlegt að taka lán og setja í heilbrigðiskerfi landsmanna. Við ætlum ekki að byggja dvalarheimili og láta notendur dvalarheimilisins greiða kostnaðinn við byggingu heimilisins, bara svo það sé á hreinu, virðulegi forseti.
Ég vil biðja þá þingmenn sem reyna að etja saman einstökum verkefnum að láta af því. Það skiptir miklu máli að framkvæma úti á landi. Norðfjarðargöng eru gríðarlega mikilvæg samgöngubót, Dýrafjarðargöng eru gríðarlega mikilvæg samgöngubót, (Forseti hringir.) en Vaðlaheiðargöng hafa ekkert með þessar góðu framkvæmdir að gera.