veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um veiðigjöld. Þetta frumvarp er annað af tveimur sem ætlað er að breyta því fiskveiðistjórnarkerfi eða því fyrirkomulagi sem við höfum við fiskveiðar í dag.
Grunnhugmyndin með þessu frumvarpi er sú að í íslenskum fiskveiðum sé auðlindaarðurinn slíkur að það beri að skattleggja hann sérstaklega. Í 10. gr. frumvarpsins er talað um hvernig reikna á nákvæmlega rentu og annað slíkt. Ég tel að miðað við hvernig umræðan hefur verið og hvernig fjallað er um auðlindarentu og fiskihagfræði í þessu frumvarpi sé ekki úr vegi að byrja á því að útskýra hvað auðlindarenta er.
Árið 1911, fyrir réttu 101 ári síðan, kom út mjög merkileg grein eftir Danann Jens Warming í Nationaløkonomisk Tidsskrift í Danmörku. Greinin, sem bar nafnið „Ålegårdsretten“, er fyrsta stóra framlagið til fiskihagfræði þar sem reynt er að skilgreina hvernig umframarður verður til í fiskveiðum og hvað auðlindarenta er. Jens Warming hafði komið auga á það … (Utanrrh.: Ekki tala um allt sem hann gerði, haltu aðra ræðu um það.) Virðulegi utanríkisráðherra. Þú kannski leyfir mér kannski að …
(Forseti (ÁRJ): Forseti vill minna hv. þingmann á að ávarpa forseta og tala til hans úr ræðustóli Alþingis.)
Virðulegi forseti. Hæstv. utanríkisráðherra leyfir mér kannski að halda áfram með mál mitt. En Jens þessi Warming hafði orðið þess áskynja að það fyrirkomulag ríkti í álagildruveiðum í Danmörku að landeigendur sem áttu land að sjó þar sem ála var von, getum við sagt, tóku gjald af álaveiðimönnum til að hafa nytjar af jörðinni en ekki síst til að hafa stjórn á álaveiðunum. Warming kom auga á að með því fyrirkomulagi var mun meiri hagnaður hjá álaveiðimönnum miðað við önnur svæði þar sem ekki var tekið gjald og þar sem ekki var nein stjórn á veiðunum. Warming lagði höfuðið í bleyti og komst að því að með því að takmarka veiðarnar á þennan hátt væri hægt við nýtingu náttúruauðlinda, og hann hafði sérstaklega í huga fiskveiðar, að mynda auðlindarentu sem leiddi til mikillar hagkvæmni í veiðum.
Grein Warmings vakti ekki mikla athygli í vísindasamfélaginu en árið 1954 kom út grein eftir Kanadamanninn Scott Gordon þar sem hann komst að sömu niðurstöðu og Jens Warming og markar það upphaf fiskihagfræðinnar eins og við þekkjum hana í dag. Að vísu hafa orðið breytingar og endurbætur eins og við þekkjum en í grundvallaratriðum getum við lýst því hvernig auðlindarentan verður til með því að ímynda okkur fiskveiðar. Í fiskveiðunum er fjöldi sjómanna það mikill og það fjármagn sem er notað við fiskveiðarnar slíkt að umframarðurinn eyðist allur, þ.e. auðlindarentan er núll. Í þessum ímynduðu fiskveiðum hugsum við okkur að gefin séu einkaleyfi til veiða og að þessi einkaleyfi séu framseljanleg á milli þeirra útgerða sem stunda fiskveiðarnar.
Einhverjir vilja fara út úr veiðunum og selja þá einkaleyfi sín til annarra sem vilja stunda veiðar áfram. Aðrir sameina einfaldlega fyrirtæki sín o.s.frv. Niðurstaðan af þessu er sú að sjómönnum fækkar mjög sem stunda fiskveiðarnar og fjármagnið sem notað er við fiskveiðarnar minnkar mjög mikið.
Nýtingin á sóknargetunni batnar mjög mikið en það magn sem við komum með að landi breytist ekki vegna þess að einkaleyfin hafa ekki áhrif á hvað sjórinn getur framleitt af fiskum, ef við orðum það með svo undarlegum hætti.
Það sem gerist er að á nokkrum árum fækkar skipum og sjómönnum sömuleiðis og auðlindarenta fer að myndast. Í frumvarpinu er talað um að innheimta eigi hluta af þessari auðlindarentu fyrir ríkið vegna þess að þjóðin eigi auðlindina. Hver hefur orðið raunin á Íslandi? Raunin hefur orðið sú að fiskiskipum hefur fækkað mjög, nákvæmlega eins og fiskihagfræðin spáði fyrir um, frá því kvótakerfið var sett á árið 1983, í kjölfar útkomu svörtu skýrslu Hafró. Þar var því spáð að fiskstofnar mundu hrynja við Ísland ef ekkert yrði að gert. Fiskiskipum hefur fækkað úr um það bil 2.600 í um 1.100. Þá tel ég ekki strandveiðarnar með vegna þess að þær eru nýlegt fyrirbæri og þar er ekki um mjög mikinn afla að ræða.
Nákvæmlega eins sem fiskihagfræðin spáði fækkaði sjómönnum og minna fjármagn var notað í útgerðina og þá varð til þessi auðlindarenta sem Jens Warming kom auga á í athugunum sínum árið 1911 og Scott Gordon árið 1954. Þá myndaðist þessi umframhagnaður.
Þetta er lýsing á því gæfuspori sem Íslendingar tóku árið 1983 sem leiddi til þessa umframarðs sem er í fiskveiðum í dag.
Spurningin er síðan: Hverjir njóta þessa auðlindaarðs? Kostnaðarstrúktúrinn í útgerð á Íslandi er þannig að fyrst er borgað fyrir olíu og veiðarfæri af þeim tekjum sem koma inn við fiskveiðar. Eftir það er þeim tekjum sem verða til við sölu aflans skipt á milli útgerðanna annars vegar og sjómannanna hins vegar. Þeim er skipt í hlutföllum þannig að útgerðin fær um það bil 60% og sjómennirnir um 40%. Af þessu er augljóst að auðlindaarðurinn eða auðlindarentan sem orðið hefur til í fiskveiðunum skiptist á milli útgerðanna og sjómannanna í hlutföllunum 60/40.
Síðan eru sjómennirnir skattlagðir og þeir borga tekjuskatt af tekjum sínum sem rennur í ríkissjóð og útgerðirnar borga skatta af hagnaði sínum sem renna einnig í ríkissjóð. Svo ég leiðrétti mig aðeins er annars vegar tekið af tekjum sjómannanna í ríkissjóð og hins vegar í sveitarsjóð, út af útsvarinu.
Af þessari lýsingu má auðveldlega sjá að auðlindaarðurinn sem orðið hefur til við að þessi einkaleyfi hafa verið innleidd í fiskveiðar, sem við köllum í daglegu tali kvótakerfi hér á Íslandi, rennur til sjómanna og til útgerða og síðan að hluta til til ríkissjóðs og sveitarfélaga. Það eru þessir þrír aðilar sem skipta á milli sín auðlindaarðinum. Í frumvarpinu er fjallað um að hluti útgerðarinnar verði skattlagður meira en gildir um hefðbundin fyrirtæki á Íslandi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að eftir að kostnaður af óskiptu hefur verið greiddur, eftir að laun hafa verið greidd, stendur eftir einhver upphæð. Síðan er svokölluð árgreiðsluaðferð notuð til að reikna út það sem þykir hæfilegur hagnaður og svo er það greiðsla fyrir fjármagnsnotkun í útgerð sem dregin er frá þeirri upphæð sem eftir stendur. Eftir er einhver upphæð sem nú á að skattleggja sem kölluð er framlegð eða umframframlegð og er sögð vera um 80–90 milljarðar á þessu ári. Ríkið ætlar á næstu fimm árum að taka upp í 70% af þessari framlegð í ríkissjóð. En takið eftir, ekki er talað um að taka eigi auðlindaarðinn sem fellur í hlut sjómannanna, að skattleggja hann sérstaklega, þannig að taka á þetta útgerðarmegin.
Deilan í dag snýst raunverulega um hve stóran hluta af þessari framlegð ríkið á að fá í sinn hlut og hve stóran hluta útgerðin á að fá. Það er kannski óþarfi að segja það en það er rétt að fram komi að af þeim 30% sem eftir eru þegar búið er að reikna auðlindagjaldið út er greiddur tekjuskattur. Þá borga útgerðirnar tekjuskatt sem er 20% þannig að eftir verða um það bil 15% af þessari reiknuðu framlegð hjá útgerðunum.
Þá er sagt að verið sé að skattleggja auðlindaarðinn en eins og þeir vita sem hlýddu á mál mitt þegar ég útskýrði hvernig auðlindaarðurinn verður til, eru engin tengsl þarna á milli. Hér er því búið að rugla saman hugtökum og rugla saman því sem raunverulega á að fjalla um, þ.e. auðlindarentunni, við einhverja reiknaða framlegð sem reiknuð er á einhverri skrifstofu úti í bæ, nánar tiltekið Hagstofunni. Í fyrsta lagi stoppa ég strax við aðferðina, þ.e. það hvernig veiðigjaldið er lagt á. Það er gert á rangan hátt. Í öðru lagi er einungis hlutur útgerðarinnar skattlagður og í þriðja lagi er sú skattlagning allt of há, það er allt of mikið að taka þessi 70%.
Um þetta snýst deilan. (Gripið fram í: Rétt.) Það er algjörlega ljóst að með því að taka þetta miklar tekjur af útgerðinni mun það leiða til þess að minna verður fjárfest í framþróun í útgerð, það verður minni geta til að greiða skuldir, sem er kannski hin hliðin á sama peningnum, þannig að það kemur illa niður á útgerðinni.
Svo er annar vinkill á málinu, þ.e. hitt frumvarpið sem er breyting á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þar er verið að gera breytingar sem leiða til þess að það ferli sem ég lýsti í byrjun, hvernig farið er úr óhagkvæmum veiðum, þ.e. ólympískum veiðum þar sem auðlindarentan er engin, yfir í það að gefa einkaleyfi, sem við köllum kvótakerfi í daglegu tali, sem leiðir til þess að til verður auðlindarenta. Hitt frumvarpið snýst um að snúa þessari þróun við, þ.e. annars vegar að fjölga sjómönnum sem stunda fiskveiðar og hins vegar að fjölga bátum sem stunda fiskveiðar þannig að auðlindarentan eyðist þarna á altari óhagkvæmni. Það er verið að gera veiðarnar óhagkvæmari.
Við skattleggjum því meira en við byggjum það á kerfi sem gert er óhagkvæmara í hinu frumvarpinu. Þetta er allt afar sérstakt og það er ekki mikil hugsun í þessu.
Í hinu frumvarpinu, þ.e. frumvarpi um breytingu á fiskveiðistjórnarkerfinu, er annar þáttur sem kemur í veg fyrir að kerfið verði hagkvæmt, það er að eftir 20 ár er í raun sólarlag á því kerfi sem við þekkjum í dag, eftir 20 ár verður framsal ekki leyft lengur, þ.e. hagkvæmar útgerðir geta ekki lengur keypt út óhagkvæmar útgerðir, auk þess að þegar kvóti er seldur á þessu 20 ára tímabili eru 3% tekin til ríkissjóðs í svokallaða leigupotta.
Það eykur óhagkvæmnina í greininni og minnkar þann skattstofn sem ég var að reyna að lýsa áðan og veiðarnar verða óhagkvæmar.
Þetta er grundvallarhugsunin, eða öllu heldur grundvallarvanhugsunin í þessum frumvörpum, fyrst er kerfið gert óhagkvæmt og síðan eru skattar á það hækkaðir. Það er svipað því, af því að ég sé að í hliðarsal situr maður sem hefur mikið vit á landbúnaði og þekkir hann vel, og að ætla sér að reyna að mjólka mjólkurkú meira en minnka við hana fóðrið um leið. Eins og hv. þingmaður veit er það ekki góð búmennska. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
Eins og ég hef lýst málinu er það mjög vanhugsað.
Ef ég kem aðeins að deilunum sjálfum hafa mikil orð verið höfð um þá sem reyna að standa vörð um núverandi kerfi. Þar er talað um grímulausa hagsmunagæslu fyrir stórútgerðina, þar er talað um að LÍÚ, eða „líúg“ eins og forsætisráðherra kallar þau samtök, hafi verið inni á gafli hjá Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum (VigH: Keyptar afskriftir.) og fengið allt sem þau heimtuðu. Dregin er upp afar ófögur mynd og jafnframt því er ekki talað um útgerð heldur stórútgerðarmenn og um sægreifa, kvótakónga og annað slíkt. Allt það er gert til að reyna að sá fræjum óánægju meðal fólks. En Íslendingar sjá í gegnum svona málflutning. Þó að það sé svona og svona að vitna í skoðanakannanir, sjáum við að skoðanir Íslendinga, almennings á Íslandi, hafa breyst mjög undanfarin missiri. Við sjáum það til dæmis á því að í skoðanakönnunum hafa þeir sem þar svara, í kringum 75%, sagst vera óánægðir með núverandi kvótakerfi og að því þurfi að breyta. En jafnt og þétt hefur það breyst. Í nýjustu könnuninni kemur í ljós að þessi tala er komin niður í 50%. Ég tel að sú umræða sem verið hefur síðustu þrjú ár, sem hefur verið mjög þung, hafi leitt til þess að stöðugt fleiri skilja hvar hagsmunirnir liggja. Eins og heyra má af ræðu minni er þetta alls ekki einfalt mál. Það er mikið mál að setja sig inn í þessi mál, það þarf að hafa fyrir því að setja sig inn í hlutina til að skilja hvernig kerfið virkar en því fleiri það eru sem skilja það, þeim mun meiri er stuðningurinn við kerfið.
Þar af leiðandi getum við sagt að þessar tilraunir ríkisstjórnarinnar til að gjörbylta kerfinu hafi leitt til góðs að því leyti að stöðugt fleiri skilja þá hagsmuni sem liggja þar undir, þeir skilja að þeir hagsmunir liggja hjá þjóðinni. Það er ekki eins og menn hafa reynt að mála það upp, og sérstaklega Samfylkingin, að hér séu nokkrir sægreifar og kvótakóngar sem liggi eins og ormar á gulli á fjöreggi þjóðarinnar og þjóðin njóti þess á engan hátt. Ég útskýrði áðan hvernig auðlindaarðurinn, hagkvæmnin í veiðunum leiðir inn í þjóðfélagið og stöðugt skilja fleiri hvar hagsmunirnir liggja.
Þess vegna er mjög dapurlegt að hlusta á hv. þingmenn tala á þeim nótum sem ég lýsti. Við heyrðum í umræðum undir liðnum um störf þingsins fyrr í dag orðalagið sem notað er um útgerðirnar og útgerðarmenn. Við heyrðum hvernig er talað um að enginn þeirra sem vinnur við fiskveiðar og vinnslu sé sáttur við þetta kerfi og að verið sé að nota fólk eins og mannlega skildi. En þá er rétt að grípa aðeins inn í og benda á hver raunveruleikinn er. Í gær var haldinn samstöðufundur í Vestmannaeyjum til að verjast þessum frumvörpum. Um 470 manns sóttu fundinn, sem hlýtur að teljast góð mæting á alla mælikvarða. Þar voru sjómenn og landverkafólk sem mætti til að sýna aðgerðum útgerðarmanna stuðning. Sagt er að mikil samstaða hafi verið á fundinum og að hann hafi verið sóttur af öllum stéttum og starfsgreinum, að fyrirtæki hafi lokað og starfsmenn hafi fjölmennt á fundinn. Það er kannski rétt að geta þess að það voru ekki útgerðarmenn sem héldu þennan fund heldur stéttarfélag sjómanna og landverkafólks. Þar var samþykkt ályktun sem hljómar eitthvað á þessa leið, með leyfi forseta:
„Ályktun fundar landverkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum í Höllinni 4. júní 2012.“ — Ég minni á, áður en ég hef lesturinn á ályktuninni, að til þessa fundar var boðað og hann haldinn af stéttarfélögum sjómanna og landverkafólks þannig að útgerðarmenn komu ekki þar nærri.
Ályktunin hljómar svona, frú forseti:
„Frumvörpin um sjávarútveginn, sem liggja nú fyrir Alþingi eru klárlega aðför að kjörum sjómanna og landverkafólks. Það er morgunljóst að auðlindagjald í sjávarútvegi kemur til með að rýra kjör sjómanna og landverkafólks. Allir aðilar sem hafa skilað umsögnum um frumvörpin eru sammála um að svo sé. Fundurinn tekur heilshugar undir þá skoðun að auðlindagjald í sjávarútvegi sé í raun landsbyggðarskattur.“
Síðan er fjallað eitthvað um kjarasamninga milli sjómanna og útgerðarmanna og að þeir séu á borði ríkissáttasemjara.
Síðan segir:
„Frumvarpið um auðlindagjald í sjávarútvegi setur kjaraviðræður sjómanna og útvegsmanna í mikið uppnám og stefnir í að mikil harka hlaupi í viðræðurnar. Ríkisstjórn hinna vinnandi stétta stendur fyrir því með frumvarpi um auðlindagjald í sjávarútvegi, að skapa glundroða og óeiningu meðal þjóðarinnar.“
Takið eftir, þetta eru ekki útgerðarmenn sem tala hér, þetta er samþykkt á fundi sem verkalýðsfélög sjómanna og landverkafólks stóðu að.
Síðan segir:
„Fundurinn ályktar að frumvarpið um fiskveiðistjórnina sé stórt skerf afturábak fyrir Vestmannaeyjar. Pólitískir pottar eru ekki sú lausn sem hugnast sjómönnum og fiskverkafólki í Vestmannaeyjum. Undanfarin ár hafa stjórnvöld margoft rýrt okkar hlut með alls konar breytingum á kvótakerfinu. Nú skal enn höggvið í sama knérunn og aflaheimildir færðar frá Vestmannaeyjum til annarra sem stjórnvöld hafa velþóknun á. Þessu mótmælum við harðlega og sættum okkur ekki við áframhaldandi skerðingar á okkar kostnað.“
Svo mörg voru þau orð. Þetta sýnir að sá málflutningur sem við heyrðum hér fyrr í dag hjá hv. þm. Skúla Helgasyni, hjá hv. þm. Róberti Marshall og hjá hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur á ekki við nein rök að styðjast í raunveruleikanum. Það er hreinlega verið að segja ósatt í ræðustól þegar sagt er að engin verkalýðssamtök eða engir fulltrúar landverkafólks eða sjómanna séu þeirrar skoðunar að þetta sé slæmt fyrir umbjóðendur þeirra.
Hér hefur hlutunum eitthvað verið snúið á hvolf, held ég.
Það er alltaf auðvelt að finna eitthvert eitt dæmi og þrátt fyrir að það sé ansi áhrifamikið og margir hafi staðið að því í hinum mikla útgerðarbæ, Vestmannaeyjum er rétt að reyna að leita fleiri dæma. Á vefmiðlinum visir.is segir í gær, með leyfi virðulegs forseta:
„Sjómenn styðja ákvörðun Landssambands íslenskra útvegsmanna um að halda skipum heima til þess að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um auðlindagjald og fiskveiðistjórnarkerfið.“
Síðan er vitnað til viðtals við formann kjararáðs Sjómannafélags Íslands:
„Þetta er tvíþætt. Það eru annarsvegar þessar aðgerðir þeirra. Ef þær væru frístandandi þá myndum við styðja þær. […] Það sem verður rifið af þeim […] endar illa fyrir okkar kalla.“
Þetta segir formaður kjararáðs. Síðan er fjallað um að verið sé að deila um launin og það megi rekja til þessara frumvarpa eða afleiðinganna af þessum frumvörpum.
Hér er komið annað dæmi þar sem þeir sem starfa beint við auðlindina eru ósáttir og gefa mjög sterkar yfirlýsingar um að ekki sé rétt haldið á málum.
Jafnframt hafa heyrst raddir um að boðaðir verði fleiri slíkir samstöðufundir úti um allt land, að boðað verði til þeirra af landverkafólki og sjómönnum, auk þess sem má af fréttum dæma að bátar sem ekki eru innan Landssambands íslenskra útvegsmanna séu í stoppi. Við sjáum til að mynda að í Grindavík fer enginn bátur á sjó. Það er ekki hægt að segja að þær útgerðir séu í Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þar af leiðandi dreg ég þá einföldu ályktun af því sem ég hef farið hér yfir, af því sem ég hef endurtekið úr fréttum, að það sé víðtæk mótstaða við þessi tvö frumvörp hjá þeim starfsmönnum sem starfa við greinina, hvort heldur sem eru sjómenn eða landverkafólk.
Maður spyr sig hvernig stjórnvöld geti farið fram með slíku offorsi í jafnmikilvægu máli og þessu og jafnmikilli andstöðu við þorra þjóðarinnar, að því er virðist, hvort heldur sem það eru þeir sem starfa við greinina eða umsagnaraðilar um frumvörpin, þar sem einungis ein umsögn er jákvæð, ég held að það sé umsögn Samfylkingarfélagsins á Suðurlandi, með fullri virðingu fyrir þeim félagsskap. Reyndar var álit frá Reykjavíkurborg óneitanlega nokkuð merkilegt þar sem sagði eitthvað á þá leið: Einungis þúsund starfsmenn í Reykjavík starfa við sjávarútveg þannig að hann skiptir engu máli fyrir okkur Reykvíkinga. Það lýsir kannski þeirri firringu sem ríkir hjá þeim sem komnir eru langt frá grunnatvinnuveginum.
Maður hugsar óneitanlega um hvernig standi á því að svo óhönduglega sé haldið á málum og hvers vegna ríkisstjórnin fari fram af jafnmiklu offorsi og gert er í þessu máli og á jafnóvandaðan hátt. Þetta er þriðja tilraun þessarar ríkisstjórnar til að gjörbylta íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu. Það er að verða árlegur viðburður að gerðar séu tilraunir í þessa átt og ef maður reynir að spá í pólitíkina í því öllu saman skilur maður ekkert hvað þessu fólki gengur til.
Það er vissulega rétt að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er talað um að breyta eigi fiskveiðistjórnarkerfinu og það hefur verið hið stóra markmið Samfylkingarinnar í mjög mörg ár að umbylta því einhvern veginn. Upp hafa komið alls konar hugmyndir en einhvern veginn hafa þær alltaf fallið niður dauðar.
Þetta mál átti að verða málið sem menn ætluðu að slá sér upp á.
Það er athyglisvert að skoða skoðanakannanir, hvaða áhrif þetta hefur haft á fylgi flokkanna í skoðanakönnunum. Það er óhætt að segja að þetta mál, að umbylta fiskveiðistjórnarkerfinu, hafi ekki reynst sú ferð til fjár sem menn héldu. Við sjáum að fylgi Vinstri grænna er komið niður í eins stafs tölu, getum við sagt, fylgið hefur hrunið af Vinstri grænum. Ef við skoðum fylgi Samfylkingarinnar er það komið niður í algjört grunnfylgi, rúm 17% segjast mundu kjósa Samfylkinguna í alþingiskosningum. Auðvitað gæti það verið tilviljunum háð að þessir flokkar bíði slíkt afhroð í skoðanakönnunum.
Þá er athyglisvert að velta fyrir sér því sem einn af stjórnmálaskýrendum Samfylkingarinnar sagði í sjónvarpsviðtali fyrir nokkrum dögum aðspurður hvernig stæði á þessu fylgishruni í skoðanakönnunum við vinstri flokkana. Þá nefndi hann breytingar á kvótakerfinu sem helstu ástæðuna fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn bættu við sig og að framlagning sama máls af ríkisstjórnarflokkunum leiddi til þessa mikla fylgishruns vinstri flokkanna. Allt er þetta nú öfugsnúið, ferðin sem átti að verða til fjár hefur reynst vera þessum flokkum til gríðarlega mikils tjóns ef marka má útskýringar þessa stjórnmálafræðings Samfylkingarinnar, sem ég held að sé ekkert ólíklegt vegna þess að eins og ég hef rakið hér hefur skilningur á fiskveiðistjórnarkerfinu aukist mjög mikið á þessu kjörtímabili við framlagningu þessara gölluðu mála sem nú hafa verið lögð fram hér í þriðja skiptið. (GÞÞ: Þetta er ekki alslæmt.) Hér hrópar hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson utan úr sal að þetta sé ekki alslæmt, nákvæmlega eins og ég sagði fyrr í ræðu minni er þetta alls ekki alslæmt. Þessum málum hefur fylgt upplýsing, stöðugt fleiri skilja um hvað hagsmunirnir snúast, það er ekki (GÞÞ: Skilja hvað ríkisstjórnin er slæm.) eins og þetta séu einhverjir sægreifar eða kvótakóngar, þetta eru hagsmunir allra Íslendinga, hvort sem þeir vinna við þjónustu í Reykjavík, við verktöku einhvers staðar eða fisk beint eða sjómennsku.
Það fer að líða að lokum þessarar ræðu minnar. Ég hef í fyrsta lagi farið yfir upphaf fiskihagfræðinnar og á hvaða kenningum hugmyndir um auðlindarentu eru byggðar. Ég hef í öðru lagi hrakið algjörlega skoðanir hv. þingmanna Samfylkingarinnar sem komu hér í morgun upp í ræðum og lýstu því yfir að þetta væri barátta LÍÚ, eða „líúg“ eins og forsætisráðherra segir, en ekki hins almenna Íslendings. Að lokum hef ég sýnt fram á að hugsanlega hafa þessi frumvörp sem lögð hafa verið fram núna þrjú ár í röð leitt til þess að meðvitund og upplýsing um íslenska fiskveiðistjórnarkerfið hefur aukist (Forseti hringir.) gríðarlega mikið meðal almennings á Íslandi.