veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Áður en ég svara spurningunni held ég að rétt sé að taka fram að hér hefur verið talað um að verið sé að leggja á veiðigjöld upp á 15 milljarða og það sé of hátt. En það er ekki alls kostar rétt vegna þess að á næstu árum munu veiðigjöldin fara yfir 20 milljarða og rétt er að hafa það í huga. Við erum því að tjalda til einnar nætur með þessa 15 milljarða.
Hvað varðar áhrif á Austurland er ljóst að þau verða gríðarlega mikil. Ef við skoðum til dæmis Fjarðabyggð þar sem megnið af uppsjávarfiski er unnið á Íslandi, þýðir veiðigjaldið eins og það var lagt fram, bara fyrir þetta sveitarfélag, að fyrirtæki þar þurfa að borga að ég held um 3.700 milljónir, í kringum 700 þúsund kr. á hvert mannsbarn í Fjarðabyggð. Það mun augljóslega hafa gríðarlega mikil áhrif. Eflaust kemur eitthvað til baka en nettó gætu þetta verið 3.000 milljarðar í Fjarðabyggð. Að taka slíka peninga út úr tæplega 5.000 manna sveitarfélagi er náttúrlega gríðarleg blóðtaka og getur ekki flokkast undir neitt annað en skatt á landsbyggðina. Áhrifin verða því gríðarlega mikil og alvarleg á þær byggðir sem byggja á sjávarútveginum.