140. löggjafarþing — 113. fundur,  5. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[15:24]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ekki fylgjandi því að veiðigjald sé eyrnamerkt einstökum sveitarfélögum. Ef við erum að tala um þjóðareign hlýtur arðurinn af þjóðareigninni að renna í ríkissjóð og það er síðan ríkissjóðs eða fjárlagavaldsins, Alþingis, að útdeila þeim fjármunum með einum eða öðrum hætti. Að öðrum kosti erum við ekki að tala um þjóðareign. Ég ræddi þetta á síðasta þingi þegar við töluðum um þau frumvörp sem þá komu fram og ég er enn sömu skoðunar. Það fer ekki saman í mínum huga að ræða um þjóðareign á auðlindinni annars vegar og ætla hins vegar að eyrnamerkja þá fjármuni sem koma vegna veiðigjalds til einstakra sveitarfélaga vítt og breitt um landið.

Ég ítreka að við þurfum að taka umræðu um byggðaþróun og þjónustu við landsbyggðina sem slíka og hvernig við viljum sjá landið byggjast í náinni framtíð. Það er aftur önnur umræða.