140. löggjafarþing — 113. fundur,  5. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[16:14]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég mun koma að því í umræðu um sjálft fiskveiðistjórnarfrumvarpið þegar það kemur til þingsins hvar skilur verulega að í þeim áherslum sem ég hafði sem ráðherra. Það er alveg klárt að ég lagði áherslu á byggðatengingar, að treysta stöðu sjávarbyggðanna og að reyna að verja stöðuna þar sem hún var farin að láta undan og hvernig mætti vinna hana til baka.

Ég minni á að hér á Alþingi var samþykkt bráðabirgðaákvæði til þriggja eða fjögurra ára þar sem ríkinu var heimilt að koma inn í sölu aflaheimilda, kaupa eða leysa til sín aflaheimildir sem var verið að selja úr sveitarfélögum, sem nam hærra hlutfalli en 20% af heildarafla í hlutdeild sem var lögfest í viðkomandi sveitarfélagi, að ríkið gæti komið inn og stöðvað þær sölur. Forsendan er að treysta aflaheimildirnar í viðkomandi byggðarlögum.

Veika hlið beggja þessara frumvarpa er að í þeim eru eiginlega allar byggðatengingar skornar af og markaðsvöldin látin ráða ferð. Það örlar að vísu á óljósum hugmyndum varðandi leigukvóta í fiskveiðistjórnarfrumvarpinu, að hann geti verið byggðatengdur en útfærslan er mjög óljós. Ég tel því að þarna sé eiginlega brotið blað, þarna skilur verulega að við stefnu míns flokks, að ég tel, ef ég vitna í stefnu okkar í ritinu Hafið, bláa hafið. Þar leggjum við megináherslu á að treysta stöðu sjávarbyggðanna (Forseti hringir.) bæði við stjórn fiskveiða og aðra skipan mála. Þetta er afar veik hlið og afar veikur þáttur í þeim frumvörpum sem hérna hafa verið lögð fram og er að (Forseti hringir.) mínu viti óásættanlegt.