veiðigjöld.
Frú forseti. Af þeim tveimur flokkum sem mynda ríkisstjórn er engin launung að Samfylkingin er mun markaðshyggjusinnaðri og ekki hvað síst hvað varðar sjávarútveginn en Vinstri hreyfingin – grænt framboð. Það er gott að vita að hv. þingmaður er vel að sér í stefnuskrá Vinstri grænna um sjávarútvegsmál og hefur lesið Hafið, bláa hafið, því að það er mjög góð bók og þar er á einum stað tekið saman meira um sjávarútveginn, skipulag sjávarútvegs og möguleika okkar í þeim efnum en ég hef séð annars staðar. (Gripið fram í: … aðild að ESB.) Já, aðild að ESB, það vita allir að við höfum ekkert að gera í það, við förum ekkert í ESB.
Ég vil minna á ákveðna þætti sem ég beitti mér fyrir sem ráðherra, til dæmis strandveiðarnar. Menn geta deilt um ýmislegt í útfærslu strandveiðanna en þær skiptu að mínu mati gríðarlega miklu máli. Þar er vissulega tekið upp að menn greiði ákveðið leyfisgjald til þeirrar hafnar sem er verið að landa til, en það er tengingin við viðkomandi svæði og samfélag sem lögð er til grundvallar.
Ég minni líka á skötuselinn sem setti allt upp í loft. Samtök atvinnulífsins, með LÍÚ innanborðs, sagði upp stöðugleikasáttmálanum og allt átti að fara á heljarþröm út af nokkur hundruð tonnum af skötusel. Hluti af því gjaldi sem tekið var fyrir skötuselinn rann einmitt til uppbyggingar og þróunarverkefna á landsbyggðinni í viðkomandi sjávarbyggðum og mæltist mjög vel fyrir. Mér fannst það rangt þegar samþykkt var við fjárlög þessa árs að taka það fé beint í ríkissjóð í staðinn fyrir að leyfa því áfram að renna til þróunar- og rannsóknaverkefna í minni sjávarbyggðum eins og það hafði gert.