veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir yfirgripsmikla ræðu sem hann flutti reyndar með hléi eins og gengur. Það sem mig langar að spyrja þingmanninn út í er sá kafli í hans ræðu þar sem hann fjallaði um landsbyggðina og það, eins og ég skildi hv. þingmann, að verið væri að útdeila einhverjum gæðum til einstakra byggðarlaga til að þau yrðu lífvænlegri o.s.frv.
Við getum örugglega haft ýmsar skoðanir á því hvernig best sé að standa að því að halda öllu landinu í byggð ef það er eitthvert markmið. Í fyrsta lagi þurfa menn að hafa það sem markmið að halda landinu í byggð. Það er hins vegar þannig í dag, ef ég man rétt, að af hverjum 3 kr. sem landsbyggðin býr til í tekjum fyrir land og þjóð verða 2 kr. eftir á höfuðborgarsvæðinu en 1 kr. fer til baka út á land.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort það sé eðlilegt að skiptin séu þannig, hvort það sé ekki eðlileg krafa hjá þeim sem búa úti á landi að meiri fjármunir komi til þess að jafna t.d. þjónustu, samgöngur, heilbrigðisþjónustu og ýmislegt þess háttar. Eins hvort sá veiðiskattur sem nú á að leggja á leggist ekki misþungt á landsmenn vegna þess að þetta er sérstakur skattur sem á að leggjast á fyrirtæki sem eru í útgerð og 85–90% af aflaheimildum eru úti á landi. Það má færa fyrir því rök að þetta sé að stórum hluta landsbyggðarskattur. Er hv. þingmaður sammála mér um að hann deilist ekki jafnt á þegnana heldur eftir því hvar þeir búa?