veiðigjöld.
Herra forseti. Þetta eru mjög athyglisverðar spurningar sem hafa reyndar verið ræddar nokkuð.
Byggð í landinu helgast af ýmsum þáttum. Í fyrsta lagi þarf að vera byggðavænlegt því að menn þurfa að geta lifað á einhverju á þessum stöðum. Menn hafa lifað á sauðfjárrækt. Menn hafa lifað á verslun við sauðfjárrækt. Menn hafa lifað á landbúnaði annars. Menn hafa verið með sjávarútveg víða um landið. Fyrst, fyrir einni öld eða tveimur, voru menn með smábáta sem voru gerðir út næst miðunum og mynduðu grunn fyrir byggð. Síðan óx vélvæðingin og hraðinn í markaðssetningunni. Það þarf að koma með fisk strax á markað sem gerir að verkum að vissir staðir á landinu koma ekki til greina til að vinna slíkan fisk. Þannig eru stöðugar breytingar á byggðinni.
Ég nefni t.d. Strandir í þessu sambandi. Þar býr ekki nokkur maður, þar er töluvert mikil ferðamennska en það býr enginn þar.
Hv. þingmaður kom inn á það sem ég nefndi lauslega í byrjun ræðu minnar, vöxt ríkisvaldsins. Vöxtur ríkisvaldsins var mikill þegar minn ágæti flokkur var við stjórn. Ég held að mestu mistök okkar á þeim tíma, þeim 18 árum, hafi verið að láta velferðarkerfið og vöxt ríkisvaldsins verða svo mikinn. Það þýðir ekkert annað en að ríkið vex í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu. Það er eðli ríkis að vaxa í miðju valdsins. Fyrir það líður landsbyggðin stöðugt. Þessi tala um 2 kr. sem Reykjavík fær af hverjum 3 kr. er náttúrlega vegna þess að Reykjavík er miðja markaðssetningarinnar í þessum fyrirtækjum, hún er ekki síður mikilvæg, (Forseti hringir.) en það er aðallega vöxtur ríkisvaldsins. Þetta frumvarp eykur þann vöxt.