veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að frumvarpið auki vöxt ríkisvaldsins, í það minnsta sýnist mér að ríkið ætli sér að verða einhvers konar fisk- eða kvótamiðlari eða -sali eða hvernig það er hugsað og búa til eitthvert kerfi í kringum það sem ráðherra er svo meira og minna með puttana í, ef ég skil þetta rétt.
Hv. þingmaður talar um vöxt ríkisvaldsins, að það sé ekkert skrítið að hann verði þar sem stjórnunin er og allt það. Það kann að vera rétt. Ég held ekki að hv. þingmaður hafi verið að færa nein sérstök rök fyrir því, en það eru margir aðrir þættir sem er hins vegar misgefið af í samfélaginu þegar horft er til landsbyggðar og höfuðborgar. Þess vegna stendur enn eftir að mínu viti sú spurning hvað réttlæti það að svo lítið af tekjunum sem landsbyggðin skapar rennur aftur til baka út á landsbyggðina þrátt fyrir að höfuðstöðvarnar séu í Reykjavík þegar kemur að opinberum rekstri.
Það hefur hins vegar sýnt sig að með því að færa verkefni út á land hefur það styrkt byggð, það hefur skapað fleiri atvinnutækifæri og samkeppni á vinnumarkaði þannig að fólk hefur getað skipt um störf eða menntað sig til að taka þátt í öðrum störfum. Það er því ekki eitthvert lögmál að vöxturinn þurfi að vera á höfuðborgarsvæðinu.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það hvort komi til greina, ef við viljum ekki breyta þessu heldur vera með kerfið óbreytt þannig að vöxturinn verði á höfuðborgarsvæðinu, að styrkja landsbyggðina með einhverjum öðrum hætti, t.d. með því að nota skattkerfið, að annars konar skattur verði fyrir þá sem búa fjær höfuðborginni. Það eru dæmi um það frá Noregi. Ef ég man rétt eru líka dæmi frá Bandaríkjunum þar sem Washington hefur ekki sama vægi á þingi og önnur svæði eða fylki í Bandaríkjunum. Það er mjög áhugavert að velta þessu fyrir sér (Forseti hringir.) þegar við horfum upp á aukið misræmi að mínu viti með þessum veiðigjöldum.