140. löggjafarþing — 113. fundur,  5. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[21:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég velti fyrir mér hvort við þurfum ekki að reyna að fá hv. stjórnarliða til að skilja grundvallarhugtökin áður en þeir fara að byggja kenningar og frumvörp á misskilningi, því að svo virðist vera að ekki gæti bara misskilnings heldur ranghugmynda um grundvallarhugtök eins og framlegð í sjávarútvegi.

Annað sem mér finnst mjög undarlegt í málflutningi stjórnarliða og hv. þingmaður kom aðeins inn á er að þeir tala nú eins og auðlindin skapi sjálfkrafa verðmæti. Það má nánast skilja þá stundum sem svo að forsendur þeirra byggi á því að fiskurinn, eins og ég hef nefnt áður sem dæmi, stökkvi bara sjálfur upp úr sjónum og komist einhvers staðar í tölvu, fari á fiskmarkað, selji sig þar aftur út í sjó og syndi til Hollands og þar upp eftir kanalnum í Amsterdam og upp á disk hjá einhverjum. Þannig reikni menn verðið. Menn taka hreinlega ekki með í reikninginn alla kostnaðarliðina eins ótrúlegt og það nú er þegar um er að ræða ríkisstjórn í landi sem er að fjalla um stærstu og mikilvægustu atvinnugrein landsins.

Það hefur tekið svolítinn tíma fyrir okkur í stjórnarandstöðu, ég tala nú ekki um fólk í samfélaginu, að gera sér grein fyrir því að svona geti þetta verið, að við séum með ríkisstjórn sem ræðir um grunnatvinnuveg þjóðarinnar án þess að átta sig á grundvallarhugtökum. En þetta virðist því miður vera raunin. Svo reyna menn að bæta þetta upp með hugtakanotkun og eins og því að þeir séu fulltrúar þjóðarinnar og aðrir sem andmæli þeim séu bara gæslumenn sérhagsmuna.