veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem fram hefur komið. Það er mjög óeðlilegt að hæstv. sjávarútvegsráðherra skuli ekki sýna okkur þá virðingu að vera viðstaddur umræðu í einu mikilvægasta máli ríkisstjórnarinnar. Í raun ætti hæstv. forsætisráðherra einnig að vera hér.
Hæstv. sjávarútvegsráðherra hafði orð á því í dag að hann hefði sótt fund hjá fyrirtækinu Brimi í Reykjavík, fyrst og fremst til að hitta starfsfólkið, sjómenn og annað starfsfólk sem þar var, en hann sýnir okkur sem störfum á Alþingi ekki sömu virðingu. Hann telur okkur sennilega ekki þess virði.
Þetta er ekki gott, virðulegi forseti, og ég hvet forseta (Forseti hringir.) til að hafa samband við hæstv. ráðherra og (Forseti hringir.) helst forsætisráðherra (Forseti hringir.) líka og biðja þau að koma og taka þátt í þessari umræðu með okkur.
(Forseti (ÁI): Tíminn er liðinn, hv. þingmaður.)