140. löggjafarþing — 113. fundur,  5. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[23:28]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Í annað sinn í kvöld hef ég rekist á það að hv. þingmaður setur samasemmerki milli hugmynda minna um markað og frjálshyggjuvæðingar. Frjálshyggjan hefur á sér mjög slæmt orð, margir hafa kennt henni um hrunið. Sumir hafa talað um nýfrjálshyggju til þess að skilja hana frá þessari frjálshyggju.

Ég var bara að tala um markað og trú á markað sem ég held að velflestir flokkar, líka þeir sem trúa á samvinnuhreyfingu og þeir sem trúa á jafnaðarmennsku hafi ekki kastað frá sér. Ég hygg að flestir þingmenn Samfylkingarinnar, þeir sem á mál mitt hlýða, geti fallist á að þeir vilji hafa samkeppni, þeir vilji hafa samkeppniseftirlit, og markað. Það getur því ekki verið hugsunin á bak við þetta að vera algjörlega á móti markaði.

Hins vegar er þetta frumvarp þannig að það er allt saman í þá veru að ekki er talað um markað. Það er meira að segja sagt að Alþingi ákveði ávöxtunarkröfu, hún skuli vera 8%. Það á að ákveða verðið, það á að segja hvernig eigi að reikna út hagnaðinn. Hagstofan á að gera þetta og hitt og bara grípa inn í reksturinn.

Einn útgerðarmaður sagði líka við mig fyrir ekki löngu þegar hann var búinn að kynna sér þessi frumvörp: Get ég ekki sótt um að verða bara opinber embættismaður og fá lífeyrisréttindi eins og hæstv. sjávarútvegsráðherra og haft það bara huggulegt og vera ekkert að þessu, standa ekki í þessari áhættu sem ég stend í alla daga?

Það er nefnilega þannig að allt þetta sem við ræðum hér, skattlagningin og allt saman, gengur út á það að öllu sé stýrt ofan frá. Frumkvæði útgerðarmanna og dugnaður hverfur, þess vegna munum við tala í framtíðinni um ríkisútgerð ohf., hvort sem er beint á forminu eða að efni til.