140. löggjafarþing — 114. fundur, 6. júní 2012.
vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 4. júní sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að nefndin fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um frumgreinakennslu íslenskra skóla.