140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Það eru mörg mál sem er áríðandi að klára áður en þingið fer í hlé yfir sumarið. Eitt af þeim er á dagskrá þingsins í dag og það er þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2011–2014 og tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2011–2022. Hér eru ýmsar breytingartillögur lagðar til frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem er ástæða til lýsa sérstakri ánægju með. Ég tek fram að það er mjög brýnt að ná að afgreiða þessi mál en þetta snertir grundvallarhagsmuni mjög margra landsmanna og hér er um að ræða stórbrotin mál sem snerta umferðaröryggi. Hér er markvisst verið að auka öryggi í samgöngumálum og forgangsraða mjög í þá veru að fara í vegabætur og samgöngubætur sem draga mjög úr líkum á alvarlegum slysum og banaslysum.

Ég ætla að nefna nokkur dæmi um feikilega mikilvægar samgönguframkvæmdir sem verið er að flýta í breytingartillögum við samgönguáætlunina og er mjög áríðandi að ljúka fyrir sumarið. Það er til dæmis lagt til að flýta gerð 2+1 vegar frá Þingvallavegi að mynni Kollafjarðar um tvö til þrjú ár, flýta gerð nýrrar brúar yfir Ölfusá um þrjú til fjögur, lagt til að verja 2.300 millj. kr. til byggingar á nýjum Herjólfi og til framkvæmda við Landeyjahöfn. Þá er lagt til að flýta framkvæmdum að hluta Hellisheiðar um eitt ár og flýta framkvæmdum við Hornafjarðarfljót um eitt ár. Ég nefni það mál sérstaklega af því að hv. þm. Róbert Marshall gerir fyrirvara sem lýtur að því að hann telur brýnt að flýta brúnni yfir Hornafjarðarfljót enn frekar. Vil ég taka mjög eindregið undir þann fyrirvara frá hv. þm. Róbert Marshall og tel að það sé samgönguframkvæmd sem þurfi að skoða sérstaklega núna í meðförum þingsins hvort hægt sé að flýta enn frekar. Hún tafðist um nokkur ár vegna ágreinings um skipulagsmál sem nú er búið að leysa, en þetta er eitt af mikilsverðustu samgöngumálunum, bæði fyrir samgöngur þar eystra og styttir auk þess hringveginn um þó nokkra kílómetra.