störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær féllu hér í þingsal orð sem ég held við ættum ekki að láta okkur um munn fara í almennri umræðu, ekki um sjávarútvegsmál og ekki um önnur mál. Það var þegar hv. þm. Skúli Helgason sagði hér að útvegsmönnum væri skítsama um örlög starfsfólks síns. Þannig eigum við ekki að tala og þetta er innstæðulaust.
Hvað ættu menn þá að segja um ríkisstjórn sem leggur fram frumvarp sem hefur þær afleiðingar að þegar skoðuð eru 124 fyrirtæki, sem eru með ráðstöfunarrétt yfir 90% kvótans, og í ljós kemur að 74 þeirra geta ekki staðið við greiðsluskuldbindingar sínar ef frumvörpin ná fram að ganga? Í þessum fyrirtækjum vinna 4.000 manns.
Ég ætla ekki að halda því fram að ríkisstjórninni sé skítsama um örlög þess fólks, ég ætla hins vegar að leyfa mér að vona að ríkisstjórninni hafi orðið þarna á í messunni og þegar hún sjái þessar tölur skilji hún að það séu almannahagsmunir og hagsmunir þjóðarinnar að þetta sé leiðrétt til að skapa starfsgrundvöll fyrir þá 4.000 einstaklinga sem vinna hjá umræddum fyrirtækjum, sem ella yrðu í fullkomnu uppnámi.
Auðvitað geta menn sagt: Alltaf verður fiskurinn veiddur. En við vitum hins vegar á móti að það liggur ekkert fyrir að hann verði veiddur frá þeim stöðum sem verða illa úti ef áhrif þessara frumvarpa koma fram.
Þegar menn tala um að þetta sé svo lítið gjald, 15 milljarðar kr., eru þeir að miða við stöðuna eins og hún var á kannski besta árinu sem sjávarútvegurinn hefur lifað síðustu árin. En er þá ekki rétt að skoða áhrifin af frumvarpinu yfir lengra tímabil, t.d. 10 ára tímabil? Og hvað kemur þá í ljós? Þá kemur í ljós að framleiðnin var að meðaltali 17% en áhrif frumvarpanna yrðu þau að framleiðnin færi niður í 11% og miðað við það vaxtastig sem sjávarútvegurinn býr við er augljóst mál að 11% framlegð mun ekki duga til að fyrirtækin geti staðið undir greiðsluskuldbindingum sínum. Þess vegna verða áhrifin eins og ég sagði (Forseti hringir.) og þess vegna er þetta hættulegt og þess vegna er þetta ekki hóflegt og þess vegna er þetta ekki í þágu almannahagsmuna.