störf þingsins.
Hæst. forseti. Ég vil beina sjónum okkar út fyrir þingsalinn eitt andartak og rifja upp frétt sem birtist í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi og lýsti samfélagslegri ábyrgð verslunarinnar Krónunnar sem hefur brugðið á það ráð að setja upp leiðbeiningar fyrir þá sem kaupa sælgæti hvert sykurmagnið er og hver ráðlagður dagskammtur er fyrir börn og unglinga, þ.e. hver margir sælgætismolar.
Það er nú orðið svo að íslenska þjóðin er að þyngjast eins og aðrar þjóðir Evrópu og víða um heim og stefnir í óefni og mikil heilbrigðisvandamál í framtíðinni ef við grípum ekki í taumana sem þjóð. Þetta er ekki eingöngu mál einstaklinga, við þurfum að sýna þessa samfélagslegu ábyrgð og ekki bara í löggjöf heldur sem þjóð og verslanir þá ekki undanskildar í löggjöf. Þess vegna fagna ég því að verslunin Krónan skuli hafa stigið þetta skref og ég hvet aðrar verslanir til að gera það sama eða að þær dragi að minnsta kosti úr markaðssetningu á sælgæti eins og er í dag þar sem sælgæti er stillt upp við alla afgreiðslukassa eða á þann hátt að meiri líkur séu til þess að fólk kaupi sælgæti o.s.frv.
Laugardagsnammið var átak sem sett var í gang til að draga úr sælgætisáti barna en það hefur algjörlega snúist upp í andhverfu sína. Það sem átti að vera til að draga úr því (Forseti hringir.) hefur jafnvel orðið til þess að auka magnið, og er sælgæti nú jafnvel keypt í kílóavís. Því fagna ég þessu skrefi og hvetja fleiri verslanir til hins sama.