140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér upp undir liðnum störf þingsins til að taka undir með hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni hvað varðar flýtingu samgöngumannvirkja sem er að mínu mati afskaplega brýnt. Ég tek undir það með hv. þingmanni hve mikilvægt er að flýta framkvæmdum er varðar Ölfusárbrú, Landeyjarhöfn og að ekki sé talað um Hornafjarðarfljót.

Þegar rætt er um Hornafjarðarfljót er ágætt að rifja upp hvar einbreiðar brýr eru á hringveginum. Það er ekki bara á Hornafjarðarfljóti. Þegar við horfum á svæðið frá Vík í Mýrdal og austur um til Þingeyjarsýslna þá er þar að finna einu einbreiðu brýrnar á öllum hringveginum. Einhverra hluta vegna hafa stjórnvöld ákveðið að í einum hluta landsins séu allar einbreiðar brýr sem er að finna á hringveginum en annars staðar ekki. Þetta er pólitísk ákvörðun sem var tekin á sínum tíma og er mjög umhugsunarverð.

Þar fyrir utan eru Vestfirðir og mér skilst að þar sé auðveldara að leita að þeim brúm sem eru tvíbreiðar en þeim einbreiðu vegna þess að þar eru á að giska þrjár tvíbreiðar brýr á móti öllum þeim fjölda einbreiðra brúa sem er að finna á Vestfjarðakjálkanum.

Þetta er mjög umhugsunarvert þegar horft er til samgönguframkvæmda vegna þess að einbreiðar brýr fela í sér einhverja mestu slysagildru sem hægt er að finna á landinu öllu og er ástæða til að fara í sérstakt átak til að fækka einbreiðum brúm eins og frekast er kostur.

Þess vegna fagna ég því hér í nefndaráliti hv. umhverfis- og samgöngunefndar að nú þegar sé ráðist í flýtingu framkvæmda er varðar einbreiðar brýr og nefndi áðan Hornafjarðarbrú sem að auki styttir hringveginn talsvert. Þetta eru helstu slysagildrurnar á þjóðvegum okkar og úr því ber að bæta.