veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður kom inn á það hvernig starfsumhverfi sjávarútvegsins hefur breyst frá því við vorum með sóknardagakerfi og fórum ekki nægilega vel með hráefnið oft og tíðum. Hún kom einnig inn á þá þróun sem hefur orðið og hvað þetta er orðin hátæknileg matvælaframleiðsla eða hátæknilegur matvælaiðnaður.
Því langar mig að spyrja hv. þingmann út í markaðsþáttinn. Mér finnst vera of lítið rætt um mikilvægi markaðsþáttarins í afkomu greinarinnar og þar af leiðandi afkomu þjóðarinnar. Það eru allir fastir við það að menn þurfi að geta farið út á sjó og náð í fiskinn en of lítið gert úr markaðsstarfinu sem fram fer til að fá sem hæst verð á mörkuðum.
Hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni hvað hefði breyst þegar menn fóru úr sóknardagakerfinu og óhagkvæmninni þar, þar sem var kappkostað við að ná í sem mestan afla á sem stystum tíma, og áhrifin sem það hafði augsjáanlega á markaðinn. Hv. þingmaður nefndi líka, sem mér þótti nú vænt um, hvaða áhrif það hafði líka í öryggismálum sjómanna og hvernig viðhorfið til þeirra breyttist.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins um hagkvæmnina vegna þess að gerðar hafa verið miklar breytingar í gegnum tíðina. Við reyndum að fara í sóknardagakerfi í kringum smábátana á árunum í kringum 1990. Þegar það kerfi var lagt af um áramótin 1994/1995 var stofnaður svokallaður úreldingarsjóður. Skip sem voru undir 10 tonnum voru keypt upp og borguð út úr ríkissjóði og því var síðan velt yfir á greinina í formi auðlindaskatts. Ég hef látið taka það saman fyrir mig að í raun og veru voru þau á núvirði um 5,4 milljarðar, það var upphæðin sem þurfti að greiða til þess að úrelda, til þess að ná aftur hagkvæmni í greininni. Getur hv. þingmaður tekið undir það sjónarmið mitt að það rýri getu greinarinnar til þess að greiða auðlindagjaldið ef taka þarf aftur til eftir sóknarmarkið, eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni?