140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[17:31]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var misskilningur. Eitt sinn sagði ágætur fyrrverandi þingmaður við mig að kvótakerfi án framsals væri eins og flugvél án vængja. Ég held að það sé nokkuð góð lýsing á þeirri stöðu sem upp kæmi ef menn vildu hafa kvótakerfið þannig.

Ég vil fá að þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar um þjóðareignina, þær eru áhugaverðar og leitt að hafa ekki lengri tíma til að ræða þær. Ég hef alltaf litið á þessa setningu sem svo að með henni sé undirstrikaður fullveldisréttur íslenska ríkisins og yfirráðaréttur yfir fiskstofnunum. Með öðrum orðum, íslenska ríkið hefur til þess vald að ákveða heildarafla, setja takmarkanir um það hvenær er veitt, með hvaða veiðarfærum o.s.frv. Það er ríkið sem gerir það. Ég tel að hugtakið þjóðareign, eins og ég hef reyndar margoft sagt hér í salnum og hv. þingmaður þekkir vel þá skoðun mína, sé einhvers konar dulbúningur fyrir hugtakið ríkiseign, það sé raunverulega um það að ræða.

Þess vegna tel ég mikilvægt að gera greinarmun á þessu hlutverki ríkisins og því, sem ég tel mikilvægt, að það er séreignarréttur á sókninni sem myndast með því að það er saga á bak við það hvernig hann er orðinn til. Einstaklingar og fyrirtæki þeirra hafa lagt fjármuni í að þróa tækni til þess að lækka sóknarkostnaðinn og auka verðmæti og þannig hefur myndast hefðarréttur fyrir því að kominn sé eignarréttur á sóknarréttindin.

Hvað varðar samningana og umræðuna sem hv. þingmaður vísar til um sátt í málinu, þá veit ég og geri mér grein fyrir því að mikið er unnið með því að ná betri sátt en nú er. Ég hef alltaf sagt að sáttin getur ekki byggt á því, í það minnsta er ég ekki sáttur við að litið sé svo á, að ríkið eigi þessi réttindi. Ég hef ekki túlkað það þannig. Við getum rætt það síðar þar sem tími minn er á þrotum, en ég hef alltaf litið svo á að það sé ekki ríkið sem eigi sóknarréttindin.