140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[18:10]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir ræðu hennar. Flest var gott í ræðu hennar og er ég að nokkru leyti sammála henni.

Rétt er að geta þess sérstaklega að ríkisstjórninni hefur tekist hið ómögulega, ekki bara að etja saman stjórn og stjórnarandstöðu á þingi heldur að sameina alla aðila í sjávarútvegi með sveitarstjórnarmönnum hringinn í kringum landið og etja þeim gegn sjálfri ríkisstjórninni. Þetta hlýtur að teljast heimsmet, það er best að segja það hér.

Málið stendur nú þannig að með breytingartillögum á að taka inn tekjur upp á 15 milljarða. Mig langar í því samhengi að benda á að það er ekki nema von að ríkiskassinn sé tómur vegna þess að ég fékk svar frá hæstv. fjármálaráðherra í gær eða fyrradag, líklega í fyrradag, þar sem kemur í ljós að eftir að virðisaukaskatturinn var hækkaður upp í 25,5% hefur sá tekjustofn ríkisins horfið. Greiddur virðisaukaskattur innan lands var 32 milljarðar 2009, fór niður í 18 milljarða 2010 og er kominn niður í mínus 9 milljarða árið 2011 þannig að í virðisaukaskattskerfið vantar 40 milljarða á tveimur árum. Þetta hlýtur líka að vera heimsmet.

Þetta er nokkuð sem virðist ekki vera talað mikið um og var svarið lengi að berast. Ég ætla því að spyrja hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur: Eru þessar tillögur um veiðigjöld og álögur á sjávarútveginn ekki bara krampakennd tilraun til að ná einhvers staðar tekjum í ríkissjóð vegna þess að önnur kerfi sem ríkisstjórnin hefur komið nálægt hafa hrunið? (Forseti hringir.) Tekjustofnarnir víða hafa hrunið.