140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[18:19]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innlegg hans sem mér finnst vera málefnalegt. Þótt ég sé ekkert endilega efnislega sammála öllu get ég ekki annað sagt en að ég er sammála mjög mörgu af því sem kom fram.

Ég vil engu að síður draga fram að fjárlagaskrifstofan er undir forustu ráðherra Samfylkingarinnar, Oddnýjar Harðardóttur, og hún leggur þetta fram í sínu nafni. Ég vil líka benda hv. þingmanni á varðandi peningamálastefnuna og hvert við erum að fara og þá óvissu sem ríkir — að mínu mati algjörlega óþarfa óvissu því að við eigum að vera fyrir löngu búin að setja niður peningamálastefnunefnd eða gjaldmiðilsnefnd um framtíðargjaldmiðilsmál okkar, ég held að það sé ekkert einsýnt hvert við eigum að stefna í þá veru — að Samfylkingin hefur verið í ríkisstjórn undanfarin fimm ár þó að hún vilji ekki alltaf kannast við það og hún hefur á þessum fimm árum verið í forustu í rúm þrjú ár. Ég get ekki greint neina stefnu í gjaldmiðilsmálum fyrir þjóðina aðra en stefnu Samfylkingarinnar og það er ekki stefna ríkisstjórnarinnar.

Þá verð ég að spyrja: Veit hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon að hann er að bakka upp þá stefnu Samfylkingarinnar? Ég held ekki.

Eftir stendur að í málefnum gjaldmiðilsins okkar, í málefnum peningamála, ríkir stefnuleysi. Ég held að þetta stefnuleysi í gjaldmiðilsmálum verði enn eitt þeirra stóru mála sem núverandi ríkisstjórn skilur eftir sig eftir þau rúmu fjögur ár sem hún mun væntanlega sitja þó að ég voni að hún fari fyrr.

Ég verð að segja að ég hlakka til að hlusta á ræðu hv. þingmanns hér á eftir varðandi útleggingar Alþýðusambands Íslands á þeim forsendum sem liggja til grundvallar frumvarpinu. Það er mikið áhyggjuefni hvernig ríkisstjórnin gengur fram. Það er eins og vinstri höndin viti ekki hvað sú hægri gerir í þeim efnum því að ábendingarnar og forsendurnar í hverju málinu á fætur öðru (Forseti hringir.) eru svona sikk-sakk og ganga þvers og kruss á alla stefnumótun sem heitið getur og kemur frá ríkisstjórninni.